Fjögur koma til greina sem næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

Frans Timmerman, Margarete Vestager, Ursula von der Leyen og Manfred Weber hafa öll verið nefnd sem mögulegir arftakar Jean-Claude Juncker

Fjórir kandídatar koma til greina sem arftaki Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins. Það eru þau Frans Timmerman, Margarete Vestager, Ursula von der Leyen og Manfred Weber. Valið er þó ekki í höfn þar sem mikið er deilt um kandídatana.

Juncker lætur af störfum sínum nú í október, en hann hefur gegnt embættinu síðan árið 2014. Fundir hafa staðið yfir um helgina langt fram á nætur um að velja næsta forseta framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins.

Hvernig fer valið fram?

21 ríki þurfa að samþykkja nýjan forseta framkvæmda­stjórnar ásamt því að mann­fjöldi þeirra ríkja þarf að vera fulltrúi 65 prósent heildar­mannfjölda Evrópu­sambandsins.

Evrópu­þingið getur haft áhrif á val arftaka Juncker með því að tilnefna Spitzenkandídat. Hver og einn stjórnmála­hópur innan þingsins stingur upp á einum einstakling til að taka að sér hlut­verkið. Forseti framkvæmda­stjórnarinnar verður sá Spitzenkandídat sem kemur úr flokknum með flest sæti eða sá sem nokkrir flokkar hafa fylkt sér bak við.

Ekki er þó um formlegt ferli að ræða þar sem ekki eru reglurnar skráðar í neinn sáttmála. Um er því að ræða venju fremur en reglu. Hins vegar, verði annar einstaklingur en Spitzenkandídatinn valinn af Leiðtoga­ráði Evrópu gæti Evrópu­þingið komið í veg fyrir að hann hljóti tilnefningu vegna óánægju sinnar.

Hverjir koma til greina?

Frans Timmerman er einn mögulegra arftaka. Angela Merkel hefur þó varað við því að velja hann þar sem hann sé of vinstri­sinnaður fyrir marga harðlínu Brexitliða og hægri popúlista­hreyfingar í Póllandi og Ítalíu. Það gæti komið í veg fyrir að hann yrði samþykktur af Evrópu­þinginu. Hann hefur enn fremur verið harður gagn­rýnandi á stefnu Boris Johnson. Timmerman er fyrrum utan­ríkis­ráðherra Hollands og talar sjö tungumál. Hann var Spitzenkandídat Sósíal­ista og Lýðræðis­sinna innan þingsins.

Annar sem kemur til greina er Manfred Weber er þingmaður Evrópu­þingsins og leiðtogi European People’s Party (EPP) sem er miðju-hægri flokkur og enn fremur stærsti flokkurinn innan þingsins með 182 sæti af 751.

Margarete Vestager kæmi einnig til greina en hún er

samkeppnis­stjóri Evrópu­sambandsins

. Vestager hefur

stuðning lýðræðis­sinna

og

Grænunga, en atkvæði þeirra eru nauðsynleg til að ná meirihluta­atkvæðum innan þingsins. Vestager hefur mikla reynslu í stjórnunar­stöðum þar sem hún hefur áður verið í stöðu menntamála­ráðherra, innan­ríkis­ráðherra og efnahags­ráðherra Danmerkur.

Þriðji mögulegi arftakinn er Manfred Weber. Hann er talinn óreyndur þar sem hann hefur takmarkaða reynslu af stjórnunar­störfum, auk þess sem hann sé þýskur sem margir telja að gæti gefið Þýska­landi of mikið vald innan Evrópu­sambandsins, að því er segir í frétt RÚV.

Fjórði mögu­leikinn er Ursula von der Leyen. Hún er varnarmála­ráðherra þýska­lands og nýtur stuðnings bæði Macron og Merkel. Hún hefur einnig unnið að félags­málum í þýska­landi undir stjórn Merkel. Sama gæti þó verið uppi á teningnum og með Weber, mögulega þykir hún of tengd Merkel.

Finna þarf arftaka á fleiri vígvöllum

Bæði Angela Merkel og Emmanuel Macron studdu áður Timmerman á meðan Visegrád 4 ríkin svokölluðu, það eru Pólland,Ungverja­land, Tékkland og Slóvakía, hafa fylkt sér gegn honum. Timmerman er mikil gagn­rýnandi á þróun dóms­kerfisins í löndunum fjórum.

Einnig þarf að finna þurfi arftaka fyrir Donald Tusk, forseta leiðtoga­ráðs Evrópu, Mario Draghi, forseta evrópska seðla­bankans, og Frederica Mogherini, æðsta fulltrúa sambandsins í utanríkis- og öryggis­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár