Merkel og Macron vilja Christine Lagarde sem seðlabankastjóra Evrópu

Síðustu daga hafa langar við­ræður átt sér stað um arf­taka mik­il­vægra emb­ætta innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Angela Merkel og Emmanuel Macron vilja Christine Lagarde sem seðla­banka­stjóra Evrópu. Lagarde er núver­andi yfir­maður Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Þetta kemur fram í fréttaum­fjöllun Le Monde.

Erfitt hefur verið að ákveða hverjir muni taka við mik­il­vægum stöðum innan Evr­ópu­sam­bands­ins, til að mynda arf­taka Jean-Claude Juncker. Samkvæmt Le Monde hafa Merkel og Macron þó náð sam­komu­lagi um hvaða ein­stak­ling þau vilji standa með sem næsta seðla­banka­stjóra, það er að segja Lagarde. Hins vegar er ekki enn víst að Lagarde taki við stöð­unni þar sem umræða um málið á eftir að fara innan Evr­ópu­þings­ins.

[adspot]Verði Lagarde skipuð mun hún taka við af Mario Draghi. Einnig þarf að finna arf­taka fyrir Donald Tusk, for­seta leið­toga­ráðs Evrópu og Frederica Mog­her­ini, æðsta full­trúa sam­bands­ins í utan­ríkis- og örygg­is­málum.

Auk þess stendur yfir val á næsta for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins sem taka mun við kefli Jean-Claude Juncker núver­andi for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Það eru þau Frans Timmerman, Marg­ar­ete Vest­a­ger, ­Ursula von der Leyen og Man­fred Weber. Valið er þó ekki í höfn þar sem mikið er deilt um kandídatana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár