Stjórnarformaður Festar endurkjörinn og Sundrung felld

Guðjón Reynisson, stjórnar­formaður almennings­hluta­félagsins Festar, var endur­kjörinn í stjórnina á hluthafa­fundi félagsins sem fram fór í dag. Hann var í kjölfarið skipaður formaður af nýrri stjórn sem fundaði strax að loknum hluthafa­fundi.

Risi
Risi Festi er sann­kall­aður risi á smá­sölu­mark­aði á Íslandi en Krónan er meðal ann­ars í eigu almenn­ings­hluta­fé­lags­ins. Mynd: Davíð Þór

Guðjón Reynisson, stjórnar­formaður Festar, var endur­kjörinn í stjórn félagsins. Hann var svo valinn formaður af nýrri stjórn í kjölfarið. Fráfar­andi stjórn, sem Guðjón leiddi eftir afsögn Þórðar Más Jóhannessonar, boðaði til hluthafa­fundarins eftir tilraunir hluthafa til að knýja á um að slíkur fundur yrði haldinn. 

Aðrir sem kjörnir voru í stjórn voru Hjörleifur Pálsson, Magnús Júlíusson, Margrét Guðmunds­dóttir og Sigurlína Ingvars­dóttir, sem jafnframt var valinn vara­formaður stjórnarinnar. Margrét sat, líkt og Guðjón, í síðustu stjórn Festar. Aðrir úr stjórninni hlutu ekki stuðning hluthafa til áfram­haldandi starfa. 

Ekki á lista tilnefningarnefndar

Það mun koma í hlut þessara fimm að ráða nýjan forstjóra þessa sann­kallaða risa á íslenskum smásölu­markaði. Félagið á og rekur Krónuna, Elko, N1 og fleiri verslanir og félög. Félagið, sem er um 70 milljarða króna virði samkvæmt gengi bréfa í Kaup­höllinni, er að lang­stærstum hluta í eigu lífeyris­sjóða, sem fara samtals með um 73 prósent …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Svo skiptir mig það engu máli hver á hvað eða hverjir ráða á svæðinu!
    0
  • Ef varan fæst ekki fyrstu búðinni þar sem ég kem þá fer ég bara í þanæstu búðina alveg sama hvort það er bónus eða krónan eða iceland því allt er þetta sama varan hver svo sem eigandinn er þótt hún sé frá sitthvorum framleiðandanum
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Af hverju var formaðurinn og varaformaðurinn endurráðinn? Ég versla ekki við Krónuna N1 né Elko.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár