Kristnir flýja ofsatrú og eyðingu í Sýrlandi

Helmingur kristinna íbúa Sýrlands er flúinn eftir borgara­stríð og uppgang öfga­fullra íslamista. Vestur­veldin hafa unnið að vígvæðingu „hófsamra“ íslamista í Sýrlandi gegn einræði Bashars Al-Assad. Ómögulegt er að greina hverjir eru hinir hófsömu og þeir hafa ekkert gert til að stöðva bókstafs­trúaða íslamista.

Aftur til Homs
Aftur til Homs Kristnir íbúar borg­ar­innar Homs sneru aftur í hverfið sitt í mið­borg­inni í maí í fyrra. Þeim mætti eyði­legg­ing. Mynd: AFP

Kannski hafa ekki margir heyrt talað um bæinn Izra í Sýrlandi sem stað­settur er um 80 km suður af höfuð­borginni Damascus. Íbúa­fjöldinn er svipaður og á Akureyri eða um 20.000 og rétt eins og á Akureyri eru flestir bæjarbúar þar kristinnar trúar. Ólíkt Akureyri kemur Izra töluvert við sögu í Biblíunni. Heimildir eru til um þetta svæði frá því 1334 fyrir Krist auk þess sem heimildir benda til að Izra sé eitt elsta samfélag kristinna manna í heiminum. Þessi landbúnaðarbær, sem segja má að sé af nátt­úrunnar hendi stað­settur í nokkurs konar virki á milli þriggja fjall­garða, hefur staðið af sér fjöldamörg ríkja­sambönd í gegnum aldirnar en þar má helst nefna persneska- og arabíska heims­veldið. Eftir að borgara­styrjöldin í Sýrlandi braust út fyrir fjórum árum hefur þessi gamli bær í fyrsta sinn staðið frammi fyrir þeirri staðreynd að allir kristnir bæjarbúar fari í útlegð fyrir fullt og allt þar sem Jihadistar eða bókstafs­trúaðir múslímar ráða nú ríkjum í flestum bæjum í grennd við Izra. Víglínan er nú komin í einungis þriggja kílómetra fjarlægð frá Izra.

Mikilvægt er gera sér grein fyrir því að í gegnum söguna hafa kristnir og múslimar átt afar farsælt samband í Sýrlandi en það stendur einmitt í Kóraninum að Múhameð hafi sagt að bera skuli virðingu fyrir kristnum.

Íslamskir vígamenn studdir af Vesturveldunum

Eins og með flestar borgara­styrjaldir er flókið að reyna að skilja til hlítar upphaf borgara­styrjaldarinnar í Sýrlandi sem og það hrotta­fengna stríð sem þar hefur átt sér stað undan­farin fjögur ár. En Vestur­veldin með Banda­ríkin í broddi flykingar hafa verið að þjálfa og vígbúa íslamska vígamenn sem þeir hafa litið á sem hófsama og hafa þeir nú í nokkur ár barist gegn stjórnarher landsins. Þess ber þó að geta að stjórnarher Sýrlands er að lang­stærstum hluta saman­settur af múslimum. 

Forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, er alavíti en alavítar eru hluti af einni grein sjía-íslams. Talið er að um 12% Sýrlendinga tilheyri þeirri grein sjía-­íslams. Rétt eins og gyðingar líta alavítar á sig sem hina útvöldu þjóð á meðan bókstafs­trúaðir múslimar líta á þá sem trúvillinga. Lang­stærstur hluti Sýrlendinga eða um 87% eru múslímar og af þeim eru súnnítar fjölmennastir eða um 74% lands­manna en sjítar eru einungis 5% lands­manna. 10% Sýrlendinga eru síðan kristinnar trúar og um 3% drúsar en þeir eiga rætur að rekja til íslams þó langflestir múslimar líti á þá sem trúvillinga. Lang­stærsti hluti kristinna Sýrlendinga tilheyrir kirkju­deildum Austur-Evrópu en yfir hálf milljón Sýrlendinga eru hluti af grísku rétt­trúnaðar­kirkjunni. Auk þess er stór hópur kristinna Sýrlendinga hluti af kaþólsku kirkjunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár