Aðili

Bashar al-Assad

GreiningStríðið í Sýrlandi

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til loka­uppgjörs í Sýrlandi

Bandaríkja­stjórn sveik sína nánustu bandamenn gegn ISIS á dögunum með því að gefa Tyrkjum skotleyfi á varnar­sveitir Kúrda í Sýrlandi. Erdoğan Tyrklands­forseti er hins vegar kominn í stórkostleg vandræði og innrás hans er í uppnámi eftir að Kúrdar ventu kvæði sínu í kross og gerðu bandalag við Rússa og sýrlenska stjórnar­herinn. Um leið og Banda­ríkjaher er að hverfa á brott frá landinu virðist allt stefna í loka­uppgjör í borgara­stríðinu sem hefur geisað í átta ár.
FréttirStríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loft­árásir með því að kveikja í dekkjum

Síðan borgara­styrjöldin í Sýrlandi hófst árið 2011 hafa allt að 470 þúsund manns látið lífið og 4 milljónir flótta­manna hafa flúið stríðs­átökin í landinu. Loft­árásir hafa verið daglegt brauð undan­farin misseri fyrir marga íbúa landsins, en börnin í borginni Aleppo hafa nú tekið upp á því að brenna bíldekk til þess að koma í veg fyrir að sprengjum sé sleppt á borgina.

Mest lesið undanfarið ár