Spyr hvort Bjarni hafi brotið siðareglur

Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna, hefur sent umboðs­manni Alþingis erindi og óskað eftir athugun á því hvort Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hafi farið á svig við siða­reglur ráðherra með því að sitja á skýrslunni um aflandseignir Íslendinga.

Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna, vill að kannað verði hvort Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hafi farið á svig við siða­reglur ráðherra með því að fresta birtingu skýrslu um umfang aflandseigna Íslendinga fram yfir kosningar. 

Í c-ið 6. gr. siða­reglnanna segir: Ráðherra leynir ekki upplýsingum sem varða almannahag nema lög bjóði eða almannahags­munir krefjist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frumkvæði að birtingu slíkra upplýsinga sé hún í almanna­þágu.

Hefur Svandís sent umboðs­manni Alþingis erindi um málið, en embættið hefur meðal annars eftirlit með því hvort stjórn­sýslan fari fram í samræmi við siða­reglur settar á grund­velli laga um Stjórnarráð Íslands.

Svandís birtir erindi sitt á Facebook, en það hljóðar svo:

Í inngangi að gildandi siða­reglum ráðherra kemur fram að ábendingum megi koma á framfæri við umboðs­mann Alþingis kunni að vakna spurningar um hvort um brot á siða­reglum hafi verið að ræða. Með erindi þessu er þess óskað að umboðs­maður Alþingis fjalli um hvort svo kunni að vera í því tilviki að fjármála- og efnahags­ráðherra Bjarni Benediktsson ákveður að birta ekki skýrslu um aflandsfélög fyrr enn allnokkrum vikum eftir að hún lá fyrir. Þar með var skýrslunni haldið frá almennings­sjónum í aðdrag­anda kosninga sem eins og kunnugt er snerust að verulegu leyti um skattamál og skatta­undanskot. Spurningar hafa vaknað um að sú ákvörðun ráðherrans kunni að varða 6. grein c. umræddra siða­reglna en þar segir: „Ráðherra leynir ekki upplýsingum sem varða almannahag nema lög bjóði eða almannahags­munir krefjist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frumkvæði að birtingu slíkra upplýsinga sé hún í almanna­þágu.“

Virðingar­fyllst,
Svandís Svavars­dóttir
formaður þing­flokks
Vinstri­hreyfingarinnar – græns framboðs

Þingmenn Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Pírata hafa gagnrýnt Bjarna Benediktsson harðlega fyrir að sitja á umræddri skýrslu í margar vikur eftir að henni var skilað.

Stundin hefur sent þing­mönnum Viðreisnar og Bjartrar framtíðar fyrir­spurn um afstöðu þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár