Djúp spor

Maðurinn með lágstemmdu en gull­fallegu röddin, Leonard Cohen, hefur kvatt þenn heim. Ferill hans spannar meira en 50 ár. Sögur hans og lög lifa góðu lífi.

Leonard Cohen sendi frá sér sína fyrstu plötu árið 1967, fyrir tæplega 50 árum. Frá þeim tíma hefur hann skapað sér orðspor sem einn áhrifa­mesti texta- og laga­smiður sinnar kynslóðar. Hann lést í vikunni, 82 ára að aldri.

Alveg fram á þetta ár sýndi Cohen listir sínar á sviði, en hann hafði áhrifa­mikla nærveru á sviði og rödd hans – djúp og breið – leiddi fólk áfram í gegnum sögurnar sem lög hans og textar innihalda.

Röddin sem aldrei gleymist

Röddin mun ekki gleymast. Spor Cohen í tónlistar­sögunni eru óvenju­lega djúp, eins og röddin.

Síðasta viðtalið sem Cohen veitti var í sumar þegar David Remnick, blaða­maður New Yorker, heimsótti hann á heimili hans í Los Angeles. „Ég er tilbúinn að deyja“ var það fyrsta sem Cohen sagði, áður en hann fór í gegnum ítarlegt stöðumat á ferli sínum.

Skila­boðin voru tiltölu­lega einföld frá honum. Hann sagðist vera sáttur við lífsverk sitt, þrátt fyrir erfið­leika og ýmsar hindranir, og að þá mætti þessu bara ljúka. Innan við hálfu ári seinna kvaddi hann.

Cohen sagðist í viðtalinu vera heppinn, þar sem hann hefði fjöl­skyldu með sér í öllum hans störfum, sem gæfi honum svigrúm til að sinna henni eins og hann gæti best. Þetta væru hans forréttindi, og ástæðan fyrir löngum ferli. „Án fjöl­skyldunnar þá væri ég ekki að gera þetta. Það væri ómögulegt, því hún er mitt bakbein,“ sagði Cohen við Remnick.

Endurnýjun

Þó stíll Cohen – lágstemmd texta­snilld með grípandi melódíu – hafi alltaf verður sérstakur, og beintendur hans persónu, þá hefur hann endur­nýjar aðdáendahóp sinn í gegnum allan ferilinn. Þetta hefur meðal annars gerst í gegnum áhuga annarra tónlistar­manna á honum og lögum hans. Sá frábæri tónlistar­maður, Jeff Buckley, sem lést árið 1997 aðeins 32 ára gamall, gerði lagið Hallelujah eftir­minnilega að sínu á plötunni Grace. Margir tónlistar­unnendur hafa kynnst Cohen í gegnum hann í seinni tíð.

Útgáfa Cohens verðu þó alltaf frum­krafturinn. Eitthvað sem einkenndi hann alla tíð. Heilindi gagnvart viðfangs­efninu, listinni og sögunum.

Áföllin sem tónlistar­heimurinn hefur orðið fyrir á árinu, með fráfalli David Bowie, Prince og nú Cohen, eru mikil og þung. En tónlist þeirra lifir, og í tilfelli Cohen þá eru það ekki síst sögurnar sem hann sagði í textum sínum, um sígild viðfangs­efni lífsins, sem verða á spjöldum tónlistar­sögunnar um ókomna tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár