Líklegar tekjur af vatnsréttindum vegna Hvalárvirkjunar

Brúttó­árstekjur Vestur­Verks ehf. yrðu á bilinu frá áttahundruð milljónum upp í einn og hálfan milljarð króna fyrsta árið. Þetta kemur fram í minnis­blaði sem hagfræði­deild Hí vann á dögunum.

Hagfræði­deild Háskóla Íslands hefur nú reiknað líklegar tekjur af vatns­réttindum vegna Hval­árvirkjunar í minnis­blaði sem gefið var út þann 3. október síðastliðinn. Í því kemur fram að brúttó­árstekjur Vestur­Verks ehf. yrðu á bilinu frá 800 milljónum upp í einn og hálfan milljarð króna fyrsta árið. Leigu­greiðslur til eigenda Ófeigs­fjarðar verða áætlaðar stig­hækkandi frá 16 til 29 milljónum á ári í 84 til 158 milljónir árlega eftir 20 ár.

Gert er ráð fyrir að tekjurnar hækki umfram almennt verðlag með hækkandi rafmagns­verði. Eftir 15 ár verði brúttó­árstekjur af virkjuninni á bilinu frá einum milljarði króna upp í allt að tveimur milljörðum króna.

Í minnis­blaðinu kemur fram að HS orka eigi 70 prósent í Vestur­verki. Verkís hefur reiknað orkugetu Hval­árvirkjunar miðað við að Neðra Eyvind­arfjarðar­vatni sé veitt í Hval­árvatn. Þannig sé áætlað að afl virkjunarinnar verði um 55 MW og að 320 GWh verði fram­leiddar á ári. Erfitt sé að áætla líklegt verð en árið 2016 var meðalverð Lands­virkjunar í heildsölu 4,6 krónur á kílówattstund, án flutnings.

Meðalverð til stóriðju, með flutningi, var allmiklu lægra, eða um 2,9 krónur miðað við meðal­gengi bandaríkja­dals 2016. Árið 2016 voru tekjur Lands­virkjunar af flutningi um 15 prósent af summu tekna af flutningi og rafmagns­sölu. Í því ljósi sé áætlað að tekjur af rafmagns­sölu til stóriðju án flutnings séu um 2,4 krónur á kílówattstundina.

Í minnis­blaðinu kemur ennig fram að HS Orka, móður­félag Vestur­verks, selji Norðuráli rafmagn, en auk þess hafi fyrir­tækið skrifað undir við Thorsil, sem ætlaði að reisa kísilver í Helguvík. En ekkert liggi enn fyrir um hvert rafmagn frá Hval­árvirkjun fer. Framkvæmda­stjóri Vestur­verks telji líklegt að það nýtist allt á Vestfjörðum, ef áætlanir um laxeldi á Vestfjörðum standist.

Á vefsíðu Land­verndar segir að þau vinni að gerð athugasemda um auglýsta tillögu að breyttu aðal­skipulagi í Árnes­hreppi á Ströndum, sem leyfa myndu 25 km af virkjunar­vegum á óbyggðum víðernum Ófeigs­fjarðar­heiðar. Kemur þar fram að Hval­árvirkjun myndi hafa mikil og óafturkræft rask í för með sér og eyði­leggja víðerni Vestfjarða­kjálkans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár