Hagsmunasamtök vilja verðbæta viðmiðunarupphæðir styrkja

SA og SAF segja í umsögn til þingsins að það ætti að taka tillit til verðbólgu þegar verið er að ákvarða hvort fyrirtæki geti fengið viðspyrnu­styrki. Einnig vilja þau sjá styrkina gilda út apríl, óhað því hvort sóttvarna­reglur falli niður á næstu dögum.

Samtök atvinnulífsins og Samtök ferðaþjónustunnar eru bæði til húsa í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni.
Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök ferða­þjón­ust­unnar eru bæði til húsa í Húsi atvinnu­lífs­ins í Borg­ar­túni. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnu­lífsins og Samtök ferða­þjónustunnar vilja að tekjutap fyrir­tækja, sem bæta á með viðspyrnu­styrkjum, verði tengt við þróun vísitölu neyslu­verðs, eða þá að skilyrði fyrir veitingu styrkjanna verði rýmkuð.

Þetta kemur fram í sameiginlegri umsögn hagsmuna­samtakanna tveggja um frumvarp fjármála- og efnahags­ráðherra til breytinga á lögum um viðspyrnu­styrki, sem felur í sér að styrkirnir verði fram­lengdir út marsmánuð.

Styrkirnir eru veittir fyrir­tækjum sem hafa orðið fyrir ákveðið miklu tekju­falli frá árinu 2019. Segja samtökin tvö í umsögn sinni að það sé mikilvægt að hafa í huga að almennt verðlag í landinu hafi hækkað um 11,5 prósent, sem þýði að viðmiðunar­fjárhæðin þurfi að vera hærri sem því nemur til að halda verðgildi sínu frá janúar 2019 til desember 2021.

„Ef tekjur rekstrar­aðila í janúar 2019 voru 300 m.kr eru tekjur, leið­réttar fyrir verðbólgu, 335 m. kr. í desember 2021,“ segja samtökin í umsögn sinni og færa þannig rök fyrir því að nýta ætti seinni töluna til viðmiðunar.

Í lögunum um styrkina er kveðið á um að það þurfi að hafa orðið 40 prósenta tekjufall hjá fyrir­tækjum frá samanburðar­mánuði árið 2019 svo þau geti fengið viðspyrnu­styrk.

Samtökin tvö segja að „eðlilegt“ sé að taka tillit til þess að verðlag er orðið hærra við þessa útreikninga og leggja því til að útreikningur á tekju­falli veitinga­staðar skuli taka mið af verð­hækkunum, eða þá að tekju­falls­viðmiðið verði lækkað í 30 prósent til að koma til móts við verðlags­breytingar.

Vilja að styrkir haldi áfram út apríl þrátt fyrir að full aflétting eigi sér stað

Fram hefur komið á undan­förnum dögum að stefnt sé að því af hálfu stjórn­valda að leggja allar sóttvarna­ráðstafanir í samfélaginu á hilluna, mögulega fyrir enda febrúar­mánaðar. Þrátt fyrir að svo sé leggja SA og SAF til að viðspyrnu­styrkjunum verði viðhaldið út apríl­mánuð, enda sé það lægsti tekju­mánuður ferða­þjónustu­fyrirtækja.

Einnig segir í umsögn samtak­anna að ef frum­varpið eigi að ná markmiðum sínum um að brúa bilið fram til þess að ferða­vilji glæðist þá sé nauðsynlegt að tímabilið sé lengt um einn mánuð. „Þó sótt­varnar­aðgerðir séu mögulega aflagðar í mars 2022 þá tekur það alltaf tíma fyrir ferða­þjónustuna að taka við sér. A.m.k. mánaðar­aðlögun er því nauðsynleg,“ segir í umsögninni.

ASÍ vill sem fyrr að arðgreiðslur verði takmarkaðar

Alþýðu­samband Íslands hefur einnig skilað inn umsögn um þetta sama frumvarp. Þar er ítrekuð sú afstaða ASÍ, sem fram hefur komið í mörgum umsögnum um frumvörp sem lúta að styrkjum til fyrir­tækja vegna áhrifa heims­faraldursins, að „takmarka þurfi arðgreiðslur til eigenda hjá fyrir­tækjum sem fara fram á stuðning frá stjórn­völdum“.

Í umsögn ASÍ segir að eðlilegt væri að krafa væri gerð um að fyrirtæki sem þiggi styrki geti ekki úthlutað arði í þrjú ár eftir styrk­veitingu og lagt er til að sambærilegt ákvæði því sem rataði inn í lög um hluta­bætur verði sett á.

Það er eina úrræði stjórn­valda vegna faraldursins þar sem kveðið hefur verið á um að fyrirtæki greiði ekki út arð í einhvern tíma eftir að hafa nýtt úrræðið.

Alþýðu­sambandið segir einnig í umsögn sinni að gera ætti breytingar á skilgreiningu tekna í frumvarpi fjármála- og efnahags­ráðherra og þá með þeim hætti að tekjur á borð við fjármagns­tekjur og leigu­tekjur séu ekki reiknaðar með þeim tekjum sem koma til viðmiðunar.

„Eðlilegt væri að undan­skilja fjármagns­tekjur, t.d. arð, leigu­tekjur og vexti, í ljósi þess að áhrif heims­faraldurs koma fyrst og fremst fram í beinum áhrifum á sölu á vörum og þjónustu,“ segir í umsögn ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár