84 látnir eftir að vörubíll keyrði inn í mannhaf í Nice

Slösuðum sem urðu fyrir vörubílnum veitt aðhlynning.
Slösuðum sem urðu fyrir vöru­bílnum veitt aðhlynn­ing. Mynd: EPA

Hryðju­verkamaður keyrði vörubíl inn í margmenni sem fagnaði Bastillu­deginum, þjóð­hátíðardegi Frakk­lands, í borginni Nice í gær. Vöru­bíllinn keyrði um tvo kílómetra inn í mannhafið á um 50 kílómetra hraða á klukku­stund og ökumaður hans sveigði bifreiðinni fram og til baka til þess að valda sem mestum skaða. Alls létust 84.

Mikil örvinglun greip um sig á meðal mann­fjöldans sem vöru­bílinn keyrði inn í. Fréttir af vettvangi segja að foreldrar hafi kastað börnum sínum yfir nærliggjandi grindverk til að koma þeim undan því að verða fyrir bílnum og að troðast undir þegar fólk reyndi að flýja.

Ökumaðurinn var skotinn af lögreglu. Hann var vopnaður og samkvæmt ýmsum erlendum miðlum þá skaut hann á mann­fjöldann á meðan að hann keyrði í gegnum hann. Í vöru­bílnum fundust ýmis skotvopn og hand­sprengjur. Ekki hefur fengist staðfest hvort vopnin og hand­sprengjurnar voru ekta eða gervi.

Samkvæmt The Guardian herma óstaðfestar heimildir að ökuskirteini 31 árs gamals manns með tvöfalt ríkisfang, fransk og túnískt, hafi fundist í vöru­bílnum. Enginn hefur enn sem komið er lýst yfir ábyrgð á ódæðinu. 

Þetta er þriðja mannskæða hryðjuverka­árásin sem gerð er í Frakk­landi á undan­förnum tæpum tveimur árum.

Þann 7. janúar 2015 var ráðist inn í höfuð­stöðvar skop­mynda­rits­ins Charlie Hebdo. Þar voru tveir lög­reglu­menn og tíu starfs­menn blaðs­ins myrt­ir. Árás­ar­menn­irnir voru tveir bræð­ur, Said Kou­achi og Cherif Kou­achi. Þeir réð­ust sér­stak­lega á blað­ið, og ákveðna starfs­menn þess, vegna teikn­inga sem það hafði birt af Múhammeð spá­manni. Nokkrar árásir í viðbót sem tengdust fylgdu í kjölfarið, meðal annars við bænahús Gyðinga í París. Alls létust 17 manns í árásunum, sem voru þá þær mann­skæðustu sem framdar höfðu verið í París frá árinu 1961.

13. nóvember 2015 var framin röð hryðju­verka í París og Saint-Denis, þar sem þjóðar­leikvangur Frakka, Stade De France, er. Mann­skæðasta árásin var í Bataclan-leik­húsinu þar sem skotið var á áhorf­endur á tónleikum bandarísku hljóm­sveitarinnar Eagles of Death Metal. Alls létust 130 manns í árásunum og hundruðir særðust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár