Sendiferðabíl ekið á fólk á Lundúna-brúnni

Hvítum sendi­ferðabíl var ekið inn í mannmergð á Lundúna-brúnni í kvöld. Þá berast fréttir af hnífaárás og skot­hvellum. Sky News frétta­stofan segist hafa heimildir fyrir því að grunur leiki á hryðju­verki.

Búið er að loka Lundúna­brúnni í miðborg London vegna þess sem kallað er alvarlegt atvik. Hvítum sendi­ferðabíl var ekið á gangandi vegfarendur á brúnni, og að auki hefur verið greint frá því að skot­hvellir hafi heyrst og að fólk hafi verið stungið með hníf. Fréttir eru enn óljósar.

Sky News frétta­stofan segist hafa heimildir fyrir því að um hryðju­verk sé að ræða.

Lögregla hefur staðfest að bíl hafi verið ekið á gangandi vegfarendur, að fólk hafi verið stungið á Borough-markaðnum og að nú séu lögreglu­aðgerðir í Vauxhall.

Vitni segja að lögregla hafi sagt fólki á brúnni að hlaupa eins og fætur toguðu í vestur af brúnni.

Gríðar­legur fjöldi lögreglu­manna er á staðnum, líkt og sjá má í beinni útsendingu Sky News hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár