Norrænt samstarf til að sporna gegn loftslagsbreytingum

Forsætis­ráðherrar Norður­landa ásamt leiðtogum Álands­eyja og Grænlands og forstjórum fjórtán norrænna fyrir­tækja undir­rituðu yfir­lýsingu um samstarf um loftlagsmál í Hörpu í dag.

Forsætisráðherrar Norðurlandanna og hópur norænna forstjóra.
For­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna og hópur norænna for­stjóra. Mynd: Stjórnarráðið

Forsætis­ráðherrar Norður­landanna og hópur norrænna forstjóra skrifuðu undir yfir­lýsingu um samstarf með það að markmiði að sporna gegn loftslags­breytingum af manna­völdum í Hörpu í dag. Í yfir­lýsingunni kemur meðal annars fram að mest aðkall­andi séu samvinna og sameiginlegar aðgerðir sem beint er að loftslags­breytingum, betri neyslu­hegðun og fram­leiðsla og um leið verði að tryggja jafnara og sann­gjarnara samfélag.

Fjórtán fyrirtæki skrifuðu undir yfirlýsinguna

Sumar­fundur forsætis­ráðherra Norður­landanna stendur nú yfir hér á landi. Samkvæmt Stjórnar­ráðinu verður á fundinum fjallað um lofts­lagsmál, nýja fram­tíðarsýn Norrænu ráðherra­nefndarinnar til næstu 10 ára, málefni Norðurslóða og stöðu mann­réttinda­mála. Þá verður sérstak­lega horft til tækifæra til þess að auka samstarf Norður­landanna og Þýska­lands til að takast á við áskoranir á alþjóða­vettvangi, ekki hvað síst afleiðingar loftslags­breytinga og stuðning við sjálfbæra þróun.

Norrænu forsætis­ráðherrarnir funduðu með forstjórum fjórtán fyrirtæki á Norður­löndunum sem eru í samstarfi um Heims­markmið Sameinuðu þjóðanna undir yfir­skriftinni Samtök norrænna forstjóra um sjálfbæra framtíð í Hörpu í dag. Þau fyrirtæki sem mynda samtökin eru Íslands­banki, Marel, Equinor, GSMA, Hydro, Nokia, Posten Norge, SAS, Storebrand, Swedbank, Telenor, Telia, Vestas og Yara.

Öflugt samstarf stjórnvalda og atvinnulífsins lykill að árangri

Á fundinum kynntu forstjórarnir áherslu samtak­anna á mikilvægi þess að uppfylla Heims­markmið Sameinuðu þjóðanna með bættum viðskipta­háttum og auknu samstarfi einka­geirans og hins opinbera. Í tilkynningu frá samtökunum segir að ljóst sé að skammur tími sé til stefnu en stefnt er að því að uppfylla Heims­markmiðin árið 2030.

Helstu áherslur forstjóranna eru tvenns konar; annars vegar að draga úr losun gróðurhúsa­lofttegunda í starfsemi fyrir­tækjanna og hins vegar að vinna sameiginlega að því að auka upplýsinga­gjöf um fjöl­breytni í atvinnu­lífinu í þeim tilgangi að ná fram sem bestum starfs­háttum í starfsemi fyrir­tækjanna. Í yfir­lýsingu ráðherranna og forstjóranna segir að ein mest aðkall­andi sameiginlegra aðgerðin sé betri neyslu­hegðun og fram­leiðsla.

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, segir að öflugt samstarf og samstilltar aðgerðir atvinnu­lífs og stjórn­valda séu lykillinn að árangri í loftlags­málum.

„Það er ánægjulegt að finna sterkan vilja atvinnu­lífsins til að gera betur og stjórn­völd vænta mikils af því samstarfi. Við verðum að gera meira og hraðar til að ná okkar markmiðum fyrir árið 2030. Loftslags­breytingar koma verr niður á fátækum en ríkum og snerta konur á annan hátt en karla. Mann­réttindi, félagslegt réttlæti og jafnrétti kynjanna eru því samtengd loftslags­málum og allar aðgerðir gegn loftslags­breytingum verða að taka mið af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár