Tillaga að innviðafrumvarpi væntanleg í janúar

Búist er við því að tillögur að frumvarpi um rýni í fjár­festingar á mikil­vægum innviðum vegna þjóðar­öryggis verði tilbúnar í janúar á næsta ári. Sambærilegar laga­breytingar hafa átt sér stað í Noregi, Danmörku og Finnlandi á síðustu árum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Nefnd á vegum forsætis­ráðuneytisins vinnur nú að tillögum að heild­stæðri löggjöf um fjár­festingar í þýðinga­miklum samfélags­innviðum og tengdri starfsemi vegna þjóðar­öryggis. Búist er við því að nefndin skili tillögum sínum í janúar á næsta ári. Þetta kemur fram í svari forsætis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans.

Kjarninn hefur áður fjallað um fyrir­hugaða sölu íslenskra fjarskipta­fyrirtækja á innviðum, en bæði Sýn og Síminn hafa tilkynnt sölu á innviðum sínum til erlendra fjárfesta. Kaupendur á innviðum Sýnar er bandaríski fjár­festinga­sjóðurinn Digital Colony, en franska sjóðs­stýringar­fyritækið Ardian France SA hyggst kaupa Mílu, innviða­hluta Símans. Hvorug viðskiptin hafa þó enn átt sér stað, þar sem enn er beðið eftir samþykki frá yfir­völdum.

Morgun­blaðið greindi frá því fyrir tveimur vikum síðan að Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra væri með löggjöf í undir­búningi sem feli í sér rýni á erlendum fjár­festingum í mikil­vægum innviðum landsins. Þar sagði hún frum­varpið byggja á reynslu annarra Norður­landaþjóða.

Samkvæmt svari forsætis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans er unnið að tillögu að slíku frumvarpi innan sérstakrar nefndar innan ráðuneytisins núna. Búast megi við að þessar tillögur verði tilbúnar í janúar á næsta ári og að ákvörðun um framhald málsins verði tekin í kjölfarið.

Fyrir tveimur árum síðan tók í gildi breyting á norsku öryggis­lögunum sem heimilar rýni á allri fjár­festingu, innlendri sem erlendri, á meiri en þriðjungs­hlut í þjóð­hagslega mikil­vægum innviðum. Í Danmörku tóku sömuleiðis gildi ný lög um rýni á erlendri fjár­festingu á ákveðnum sviðum í júlí, en þau taka tillit til allra erlendra fjár­festinga í sérlega viðkvæmum greinum sem skilgreind eru í lögunum.

Í Svíþjóð eru ekki til staðar heildarlög um fjár­festinga­rýni en unnið er að tillögum til slíkra heildar­laga sem liggja munu fyrir annaðhvort síðar á þessu ári eða því næsta. Í Finnlandi hafa um langt skeið verið í gildi reglur um rýni erlendrar fjár­festingar í ákveðnum mikil­vægum geirum, auk þess sem árið 2019 settu Finnar sérstök lög sem fela í sér að fasteigna­kaup aðila í ríkjum utan EES-svæðisins eru háð leyfi og um leið rýni ráðuneytis varnar­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár