Sökuð um málamyndahjónaband: „Ég hafði ekkert borðað allan daginn út af spennu“

Útlendinga­stofnun vill lögreglu­rannsókn á því hvort þau Van Hao Do og Thi Thuy Nguyen séu í málamynda­hjónabandi, vegna myndbands úr brúðkaupinu. Hún var svöng, ólétt en hamingjusöm.

„Ég hafði ekkert borðað allan daginn út af spennu,“ segir víetnömsk kona, sem Útlendinga­stofnun vill láta undir­gangast lögreglu­rannsókn á þeim grund­velli að hún og eigin­maður hennar hafi stofnað til málamynda­hjónabands til að tryggja henni landvistar­leyfi á Íslandi.

Van Hao Do og Thi Thuy Nguyen eru bæði frá Víetnam en hann hefur verið á Íslandi frá barns­aldri og hefur varanlegt landvistar­leyfi. Hjónin giftu sig í desember 2013, þegar hún bar barn hans undir belti. Mat Útlendinga­stofnunnar byggir meðal annars á myndbandi úr brúðkaupinu, þar sem starfs­menn stofn­unnar telja sig sjá að henni líði illa sem og upplýsingum frá Land­spítalanum. Frétta­blaðið greindi fyrst frá málinu í gær. 

 „Ég skil ekki afhverju þeir eru að segja þetta“

Blaða­maður Stundarinnar hitti hjónin á heimili þeirra í Fellsmúla í morgun og heyrði sögu þeirra.

Snemma árs 2013 kom Thuy tíma­bundið til landsins, en hún á fjöl­skyldu hér á landi og kynntist Van Hao í gegnum frænda sinn, sem er einn af hans bestu vinum. Hao fluttist til landsins á svipuðum tíma og frændinn, eða rétt eftir aldar­mótin og með þeim tókst fljótt vinátta. Frændi Thuy bauð henni að koma til Íslands að starfa sem au pair fyrir vinafólk hans. Nokkrum mánuðum síðar hafði hún kynnst Hao. Fljótlega fóru þau að draga sig saman og örfáum mánuðum síðar gengu þau í hjónaband. 

Síðar sendi Útlendinga­stofnun beiðni til lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu um að hefja rannsókn á því hvort hjóna­bandið væri aðeins til málamynda. Dvalar­leyfi Thuy hefði runnið út í apríl 2014, en þá var hún orðin ólétt og ástfangin, að eigin sögn. 

Grunur Útlendinga­stofnunnar kviknaði hins vegar vegna myndbands úr brúðkaupinu þar sem starfs­menn stofnunarinnar þóttust sjá að Thuy liði afar illa í eigin brúðkaupi. Á þeim myndum sem blaða­maður hefur fengið að sjá úr brúðkaupinu er ekki annað að sjá en að hún sé glöð, enda brosir hún á þeim flestum. Hjónin taka það hins vegar fram að hún hafi stundum fundið fyrir líkamlegri vanlíðan, vegna þess að hún var barns­hafandi, komin mánuð á leið og að berjast við heiftar­lega ógleði og aðra meðgöngu­kvilla. Í samtali við Stundina segir Thi Thuy einnig frá því að hún hafi verið svo spennt fyrir brúðkaupinu að hún hafi ekkert getað borðað þennan dag.

„Ég var ólétt og leið frekar illa líkamlega“

„Ég var ólétt og leið frekar illa líkamlega, ég hafði ekkert borðað allan daginn út af spennu. Þeir eru að rugla saman líkamlegri vanlíðan við andlega vanlíðan,“ segir Thuy.

Tveimur mánuðum síðar, eða í febrúar, voru hjónin boðuð í viðtal hjá Útlendinga­stofnun þar sem þeirra hagir voru ræddir. Fimm mánuðum síðar fengu þau bréf þar sem þeim var tilkynnt að hjóna­bandið væri enn talið gervi­hjónaband. Í bréfinu er búið að feitletra texta sem segir að upplýsingar frá hjónunum virðist vera rangar sem geti varðað sektum eða fangelsi samkvæmt almennum hegningar­lögum. Þau benda hins vegar á að misræmi í frásögn þeirra skýrist af túlkunar­vanda og menningarmun á milli landa. Í Víetnam sé hefð fyrir því að brúðgumi greiði fyrir brúðkaupið og því hafi hún ekki getað svarað spurningum um fjár­mögnun þess. Brúðkaupið fór hins vegar fram í kirkju þann 28. desember 2013 og var veglegt á þeirra mæli­kvarða. 

Hún bendir á að brúðkaup í Víetnam séu ekki með nákvæmlega sama sniði og hér á landi. Þar sé til dæmis ekki óalgengt að brúðir hágráti í eigin brúðkaupi. Hjónum telja að það sé einkennileg staða að opinber stofnun og blaðamenn rýni í tilfinninglegt ástand hennar í brúðkaupinu. 

Þá hefur Vísir einnig greint frá því að í bréfi Útlendinga­stofnunar til lögreglu í desember 2014 sé staðhæft að samkvæmt upplýsingum frá Land­spítalanum sé Thuy „mjög ung og barnaleg en maðurinn hennar óframfærinn“.

Samkvæmt 13. gr. útlendinga­laga ber Útlendinga­stofnun að kanna hvort um málamynda­hjónaband sé að ræða ef annar einstaklingur í hjúskap er 24 ára eða yngri. Útlendinga­stofnun hefur ekki vald til að rannsaka mál á sama hátt og lögregla og hefur ekki aðgang að sjúkra­skýrslum fólks.

„Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda“

Í samtali við Frétta­blaðið segir Skúli Á. Sigurðsson, verkefna­stjóri hælismála hjá Útlendinga­stofnun, að þessar upplýsingar hafi fengist þegar Útlendinga­stofnun hafi fengið upphringingu frá Land­spítalanum. „Þetta kom bara í símtali og það liggur fyrir í dagbókar­færslu í okkar innri kerfum,“ segir hann. Hann segist ekki geta svarað fyrir það hvaða heimildir aðrir hafa til að veita upplýsingar en stofnuninni bæri skylda til að bregðast við.

Ekki er vitað hver hringdi í Útlendinga­stofnun en líklega var það gert þegar konan leitaði þangað vegna fæðingu barnsins, eða á meðgöngu, við fóstur­skimun, en dóttir þeirra, Sandra, fæddist 3. september 2014. Ljóst er hins vegar að Land­spítalanum er óheimilt að veita Útlendinga­stofnun slíkar upplýsingar um einstaklinga sem þangað leita.

„Mér fannst skrýtið að heyra að ég hafi verið barnaleg í fæðingunni. Ég skil ekki afhverju þeir eru að segja þetta,“ segir hún. 

Bæði Thuy og Hao segja að staðan sem þau eru í sé mjög erfið, svo mjög að Thuy brestur í grát þegar hún er spurð um líðan þeirra. Þau hafa bæði orð á því að fjárhags­legir erfið­leikar skerði mikið lífsgæði þeirra en fjöl­skyldan fram­fleytir sér með launum Hao hjá endur­vinnslu­fyrirtækinu Hringrás. Henni hefur verið boðið starf við ræstingar en má ekki taka því, þar sem hún hefur ekki fengið dvalar­leyfi. 

„Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda,“ svarar Hao spurður um hvað hann myndi gera ef allt færi á versta veg og Thuy yrði send úr landi.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár