Pharell Williams á vinsælasta lagið á Spotify árið 2014

Ofurs­mellur Pharell Williams, „Happy“, er mest streymda lagið á Spotify það sem af er árinu 2014, Katy Perry var sá kvennkyns tónlistar­maður sem fékk mesta hlustun og Ed Sheeran varð hlut­skarpastur karlkyns-tónlistar­manna. Plata Ed Sheeran, „x“, var auk þess mest streymda plata í heiminum og Coldplay var sú hljómsveit sem notendur Spotify hlustuðu mest á. Þetta kemur fram í nýbirtum lista Spotify, „Year In Review“, þar sem horft er aftur til þess sem gerst hefur á árinu 2014.

https://www.youtube.com/watch?v=y6Sxv-sUYtM

Hlustuðu á 800 þúsund ár af tónlist


Virkir not­endur Spotify eru orðnir um 50 millj­ónir og þeir hafa streymt um sjö millj­örðum klukku­stunda af tón­list það sem af er ári. Það þýðir að þeir hlust­uðu sam­tals á um 800 þús­und ár af tón­list á árinu, sem er reyndar enn ekki lokið.

Fimm vinsælustu karlkyns-tónlistar­mennirnir voru, í þessari röð, Ed Sheeran, Eminem, Calvin Harris, Avicii og David Guetta. Hjá konunum var, líkt og áður segir, Katy Perry í efsta sæti. Á eftir henni kom Ariana Grande, Lana Del Rey, Beyoncé og nýsjálenska unglinga­undrið Lorde.

Topp fimm listinn yfir vinsælustu hljóm­sveitir ársins á Spotify var eftir­farandi: Coldplay, Imagine Dragons, Maroon 5, OneRepublic og One Direction.

Hér að neðan er hægt að sjá listann yfir tíu vinsælustu lögin á Spotify það sem af er árinu 2014.


  1. „Happy" Pharell Williams

  2. „Rather Be" Clean Bandid (ft. Jess Glynne)

  3. „Summer"Calvin Harris

  4. „Dark Horse" Katy Perry

  5. „All Of Me" John Legend

  6. „Timber" Pitbull

  7. „Rude" Magic

  8. „Waves" Mr. Probz

  9. „Problem" Ariana Grande

  10. „Counting Stars" OneRepublic


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár