Telja rök fyrir því að sæstrengur sé ákjósanlegur fyrir Ísland

Ráðgjafa­fyrirtækið Copenhagen Economics telur að lagning sæstrengs geti tryggt orku­öryggi og verðmæta­sköpun til framtíðar á Íslandi. Ef orkuverð hérlendis yrði hækkað upp að alþjóð­legum viðmiðum gæti árlegur ávinningur verið allt að 60 milljarðar.

Helge Sigurd Næss-Schmidt, eigandi Copenhagen Economics, og Martin Bo Westh Hansen, yfirhagfræðingur fyrirtækisins, fluttu framsögu á fundinum í morgun.
Helge Sigurd Næss-Schmidt, eig­andi Copenhagen Economics, og Martin Bo Westh Hansen, yfir­hag­fræð­ingur fyr­ir­tæk­is­ins, fluttu fram­sögu á fund­inum í morgun.

Danska ráðgjafa­fyrirtæki Copenhagen Economics, telur að færa megi fyrir því fjölmörg rök að sæstrengur, til dæmis til Bretlands, gæti verið ákjósanlegur fjár­festingar­kostur fyrir Ísland, bæði til að tryggja orku­öryggi og til verðmæta­sköpunar. Þá telur fyrir­tækið að þjóð­hagslegur ávinningur þess að færa meðalverð á orku, sem hafi verið allt of lágt, að alþjóð­legum viðmiðum gæti numið um 13,6 til 59,2 milljörðum króna á ári. Það myndi þá þýða að orkuverð til heimila og fyrir­tækja myndi líka hækka. Þetta kemur fram í skýrslu sem það hefur unnið að beiðni Lands­virkjunar og var kynnt á morgun­verðar­fundi fyrir­tækisins í morgun.

Þar segir enn fremur að sæstrengur sé langtíma­valkostur því ákvarðanir um málið eigi sér langan aðdrag­anda og þá sé lagning slíks strengs tímafrek. „Á meðan er mikilvægt að mögulegar breytingar og umbætur á stefnu taki mið af streng sem langtíma­kosti, þ.e.a.s. að landið verði ekki fest í umgjörð sem reynist óhagkvæm ef til þess kemur að strengurinn verði lagður.“ Gæta þurfi að því að ákvarðanir sem teknar séu í dag hindri ekki mögu­leikann á lagningu sæstrengs síðar.

Tvær megináskoranir

Í skýrslu Copenhagen Economics kemur fram að íslenskur orku­markaður standi frammi fyrir tveimur megin­áskorunum. Annars vegar þurfi hann að tryggja orku fyrir heimili og fyrirtæki og hins vegar hvernig auka megi arðsemi á sölu orku til stór­notenda.

Í skýrslunni segir að hækkandi orkuverð á markaði til stór­notenda og aukin eftir­spurn eftir orku leið itil þess að almenni markaðurinn sé kominn í aukna samkeppni við sölu til stór­notenda. Fram­leiðendur kunni að sjá meiri hag í því að selja til stór­notenda ef verðið þar hækkar áfram. Skýrslu­höfundar telja að þessi staða gæti leitt til vandamála þar sem gengið hefur á umfram­orku sem innbyggð hefur verið í raforku­kerfið. Þá var fellt niður ákvæði um að Lands­virkjun bæri að tryggja raforku og afhendingu hennar þegar raforku­lögum var breytt árið 2003 til samræmis við Evrópu­tilskipanir. Þegar hafi nokkur íslensk orku­fyrirtæki gefið því undir fótinn að draga úr þjónustu við heimili og fyrirtæki til að auka sölu til orkufreks iðnaðar. Í samantekt sem fygldi skýrslunni segir: Mögulegar skerðingar séu áhyggju­efni fyrir heimili og smærri fyrirtæki sem gætu þurft að horfa til kostnaðar­samra og mengandi varaleiða á borð við fram­leiðslu rafmagns með dísil­rafstöðvum.

Telja að úrbætur þurfi á fimm sviðum

Skýrslu­höfundar telja að tekjur íslenskra orku­fyrirtækja af sölu til stór­notenda hafi sögulega verið of lágar og „umtals­vert undir alþjóð­legum viðmiðum, jafnvel þótt litlum tekjum afi verið safnað saman með nýtingar­sköttum.“ Þeir telja enn fremur að auknar tekjur með hærra raforku­verði verði íslensku samfélagi til mikilla hagsbóta, jafnvel þótt það fæli í sér hærra verð til heimila. Þjóð­hagslegur ávinningur gæti numið um 13,6 til 59,2 milljörðum króna á ári hverju ef meðalverð yrði fært að alþjóð­legum viðmiðum.

Samtals segir í skýrslunni að úrbætur þurfi að eiga sér stað á fimm sviðum:

  • Tryggja þarf orku til heimila og smárra og meðal­stórra fyrir­tækja.
  • Finna þarf leiðir til að tryggja Íslandi sann­gjarnt afgjald fyrir orku­framleiðslu.
  • Samþætta þarf markmið í orku- og umhverfis­málum.
  • Hugleiða mætti valkosti um breytingu á skipulagi orku­markaðar, sérstak­lega vegna orkusölu til heimila.
  • Ekki á að slá hugmyndir um lagningu sæstrengs út af borðinu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár