Carrie Fisher er látin

Carrie Fisher, sem helst er þekkt fyrir að hafa leikið Lilju prinsessu í Star Wars, er látin, 60 ára að aldri.

Carrie Fisher í hlutverki Lilju prinsessu í upprunalega Star Wars-þríleiknum.
Carrie Fisher í hlut­verki Lilju prinsessu í upp­runa­lega Star Wars-þrí­leiknum.

Carrie Fisher, leikkonan sem lék Lilju prinsessu í Star Wars-myndunum, er látin 60 ára að aldri. Hún lést á spítala eftir að hafa fengið hjarta­áfall. Þetta er haft eftir talsmanni fjöl­skyldu hennar.

Fisher er lang þekktust fyrir hlutverk sitt í Star Wars-myndum George Lucas en hún hefur einnig skrifað kvikmynda­handrit og samið bækur. Hún lék einnig í fleiri kvik­myndum.

Hún lék Lilju prinsessu á nýjan leik í Star Wars-myndinni sem var í kvikmynda­húsum í fyrra og mun henni bregða fyrir á ný á hvíta tjaldinu í Star Wars-myndinni sem fer í sýningar á næsta ári (Kafla VIII). Búið er að taka þá mynd upp. Einnig var ráðgert að Fisher yrði Lilja í sjötta sinn í kafla IX af Star Wars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár