Erdogan hefur pólitískt hreinsunarstarf í Tyrklandi

Stjórn­völd í Tyrklandi hafa handtekið þúsundir manna á einum sólar­hring.

Yfir sex þúsund einstaklingar hafa verið hand­teknir í Tyrklandi, eftir að tilraun til valdaráns mistókst í Tyrklandi. Stærstur hluti hinna handteknu kemur úr röðum tyrkneska hersins en einnig hafa 2.700 dómarar og saksókn­arar, víða um landið, verið hand­teknir, samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC.

Erdogan forseti segir valda­ráns­tilraunina hafa verið „guðsgjöf“ sem gefi færi á endursuppstokkun hersins, og að þeir sem stóðu að valda­ráns­tilrauninni muni fá makleg málagjöld.

Samtals létust 265 í átökum á meðan á tilrauninni stóð.

Dómsmála­ráðherra landsins, Bekir Mozdag, segir að „hreinsunar­starf“ sé í gangi, en meira en 50 yfirmenn í hernum, þar á meðal tugir manna sem flúðu með þyrlu til Grikk­lands, hafa verið hand­teknir.

Leiðogar margra af stærstu ríkjum heimsins hafa hvatt stjórn­völd í Tyrklandi til þess að virða lög landsins þegar kemur að uppgjöri við valda­ráns­tilraunina. Angela Merkel segir að þjóðir heimsins muni fylgjast grannt með gangi mála í Tyrklandi, og veita aðstoð eins og óskað verður eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár