Björgólfur kallar umfjöllun fjölmiðla um Samherja „víðtæka árás“

Sitjandi forstjóri Samherja segir að þegar hafi verið sýnt fram á að „stór hluti þeirra ásakana sem settar hafi verið fram á hendur Samherja eigi ekki við rök að styðjast“. Þar eru ekki færð nein rök fyrir þessari stað­hæfingu né lögð fram gögn.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

Í bréfi til starfs­manna Samherja, sem Björgólfur Jóhannsson, sitjandi forstjóri fyrir­tækisins, skrifar undir, er opinberun Kveiks, Stundarinnar, Wikileaks og Al Jazeera á meintum mútu­greiðslum, peninga­þvætti og skatta­sniðgöngu Samherja sögð „víðtæk árás á félagið.“ Það sé ekki á hverjum degi sem sótt sé að fyrir­tækinu af þeirri hörku sem sést hafi í fjöl­miðlum síðustu vikur.

Þar segir Björgólfur, sem tók við forstjóra­starfinu af Þorsteini Má Baldvins­syni þegar hann steig til hliðar tíma­bundið vegna málsins, að það sjáist þegar að stór hluti þeirra ásakana sem settar hafi verið fram á hendur Samherja eigi ekki við rök að styðjast. Síðan endurtekur hann efni tilkynninga sem Samherji hefur sent frá sér á síðustu tveimur vikum þar sem fyrir­tækið hefur sagst leiðrétta fréttir, án þess þó að birta nokkur gögn eða annars konar sönnun fyrir því að umfjöllun miðlanna sem um ræðir hafi verið röng. Í bréfinu er annars vegar nefnt umfjöllun um félagið Cape Cod FS, sem Samherji segist aldrei hafa átt.

Rakel Þorbergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV og ritstjóri Kveiks, sendi frá sér yfir­lýsingu í síðustu viku þar sem hún sagði að Samherji væri að reyna að afvega­leiða umræðu um fyrir­tækið vegna umfjöllunarinnar.

Í yfir­lýsingu hennar var bent á að aldrei hefði verið fullyrt að Samherji ætti umrætt félag heldur að norski bankinn DNB hefði talið svo vera, enda hefði starfs­maður Samherja verið meðal prókúru á reikningi Cape Cod hjá DNB og hefði stofnað reikninginn.

Kallar umfjöllun fjölmiðla „víðtæka árás“

Í bréfi Björgólfs segir hins vegar að sú „staðreynd að Samherji átti aldrei félagið Cape Cod FS þýðir í reynd að enginn fótur er fyrir ásökunum um peninga­þvætti sem settar hafa verið fram vegna greiðslna til félagsins. Lögmenn Samherja hafa fundað með bæði skatt­rannsóknar­stjóra og héraðs­saksóknara og hafa afhent embættunum öll gögn um þetta. Þá funduðu lögmenn frá Wikborg Rein einnig með héraðs­saksóknara og hafa verið í samskiptum við norsku efnahags­brota­deildina Økokrim í Osló.“

Þá vitnar hann í tilkynningu frá Samherja sem birt var í gær þar sem fyrir­tækið hélt því fram að tölvu­póstar sem Jóhannes Stef­ánsson, upp­ljóstr­ar­inn sem afhenti Wikileaks gögn sem sýna fram á meintar mútu­greiðsl­ur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti fyr­ir­tæk­is­ins, hafi verið hand­vald­ir. Þetta var rökstutt með því að hann hefði ekki ahent 58 prósent af þeim póstum sem verið höfðu í tölvu­pósthólfi hans hjá Samherja. Engar tilraunir voru þó gerðar til að hrekja það sem kemur fram í þeim póstum sem Jóhannes lét Wikileaks hafa, og eru nú aðgengi­legir öllum á internetinu, en þeir, og fylgigögn þeirra, eru grund­völlur þeirra ásakana sem settar hafa verið fram á hendur Samherja.

Tilkynningu Samherja frá því í gær var fylgt eftir með forsíðu­frétt í Frétta­blaðinu í dag þar greint var frá því, samkvæmt heimildum blaðsins, að Samherji ætlaði sér að birta „Namibíu­pósta“ Jóhannesar sem hefðu ekki þegar verið birtir. Í frétt Frétta­blaðsins var rætt við Björgólf sem vildi ekki staðfesta fréttina.

Í niðurlagi bréfsins segir Björgólfur: „Samherji er um þessar mundir að greina fleiri ásakanir á hendur félaginu en þær sem nefndar eru hér framar. Margar þeirra eru mjög alvarlegar en enn sem komið er hefur aðeins verið sagt frá annarri hlið þeirra í fjöl­miðlum. Það er erfitt fyrir félagið og starfs­menn að sitja þegjandi undir þessu. Þið getið treyst því að við munum svara öllum þessum ásökunum. Ég bið ykkur hins vegar um skilning því þetta mun taka tíma.

Þessi víðtæka árás á félagið, sem staðið hefur yfir undan­farnar vikur, hefur verið enn erfiðari viðfangs en sú sem við glímdum við í Seðla­bankamálinu. Við vitum hins vegar að sameinuð munum við standa þetta af okkur. Ég vil að þið vitið að stjórn­endur Samherja eru óendanlega þakklátir fyrir ykkar framlag til fyrir­tækisins. Án ykkar væri félagið ekki leiðandi í evrópskum sjávar­útvegi. Við ætlum að gera allt sem við getum til að tryggja að svo verði áfram.“

Meintar mútugreiðslur, þvætti og skattsvik

Rúmar þrjár vikur eru frá því að Kveikur og Stundin birtu fyrstu umfjallanir sínar sem byggðu meðal ann­ars á gögnum frá Wikileaks og vitn­is­burði Jóhann­es­ar. Í byrjun síð­ustu viku hófust að birt­ast til­kynn­ingar á heima­síðu Sam­herja þar sem umfjöllun miðl­anna, og til­tek­inn frétta­maður sem vann að henni, hafa verið gerð tor­tryggi­leg. Þær hafa verið fimm tals­ins frá 26. nóv­em­ber. Í engri þeirra hafa verið lögð fram gögn sem sýna fram á að ásak­anir á hendur fyr­ir­tæk­inu séu ekki rétt­ar. 

Í yfir­lýsingum sem Samherji hefur birt á heimasíðu sinni síðustu tæpu tvær vikur hefur ekk­ert verið fjallað efn­is­lega um hvað ætti að hafa verið í þeim tölvu­póstum Jóhann­esar sem ekki hafa verið birt­ir.

Í umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar var fjallað um við­skipta­hætti Sam­herja í Afr­íku, nánar til­tekið í Namib­íu, á síð­ustu árum á meðan að fyr­ir­tækið náði undir sig mjög verð­mætum hrossa­makríl­skvóta í land­inu. Það var gert með mútu­greiðslum til tveggja ráð­herra í land­inu og ann­arra manna úr þeirra nán­asta hring.

Auk þess var fjallað um meinta skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti Sam­herja í umfjöllun miðl­anna.

Á mánu­dag var greint frá því að Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ráð­herra Namib­­íu, Sacky Shanghala, fyrr­ver­andi dóms­­mála­ráð­herra Namib­­íu, og þrír aðrir hafi verið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­ónir namibískra doll­­ara, jafn­­virði 860 millj­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­sóttan kvóta í land­inu.

Mál­efni Sam­herja eru auk þess til rann­sóknar hjá norskum yfir­völdum og hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár