Seðlabankinn veit ekki hvað Íslendingar eiga mikið af eða hafa hagnast mikið á rafmyntum

Samkvæmt svörum við spurningum Kjarnans veit Seðla­bankinn ekki neitt um það hversu mikið af rafmyntum Íslendingar eiga, eða hversu mikið fé hefur komið inn í íslenskt hagkerfi vegna hagnaðar af fjár­festingum í rafmyntum.

Kjarnanum flaug í hug að Seðlabankinn hefði einhverja vitneskju um umfang rafmyntaeignar eða -viðskipta innlendra aðila, eða hefði gert tilraun til að leggja mat á það, en svo er ekki.
Kjarn­anum flaug í hug að Seðla­bank­inn hefði ein­hverja vit­neskju um umfang raf­mynta­eignar eða -við­skipta inn­lendra aðila, eða hefði gert til­raun til að leggja mat á það, en svo er ekki. Mynd: Pexels

Seðla­banki Íslands hefur ekki safnað tölulegum upplýsingum um viðskipti eða eignir aðila hér á landi í rafmyntum og hefur heldur ekki vitneskju um það hversu mikið fé hefur komið inn í íslenskt hagkerfi sem hagnaður vegna viðskipta með rafmyntir.

Þetta kemur fram í svörum frá Seðla­bankanum við fyrir­spurn Kjarnans um rafmyntir og sýndarfé, en lögum samkvæmt eru innlendir aðilar sem starfa sem þjónustu­veitendur viðskipta milli sýndar­fjár, rafeyris og gjald­miðla eða þjónustu­veitendur stafrænna veskja skráningar­skyldir hjá Fjármála­eftirliti Seðla­banka Íslands og starfa sem slíkir undir eftirliti Fjármála­eftirlitsins.

Kjarnanum flaug því í hug að Seðla­bankinn hefði einhverja vitneskju um umfang rafmynta­eignar eða -viðskipta innlendra aðila, eða hefði gert tilraun til að leggja mat á það, en svo er ekki.

Bankinn hefur hins vegar ítrekað komið á framfæri viðvörunum til almennings um sýndarfé, síðast í mars á þessu ári, þar sem vakin var athygli á ítrekuðum áminningum evrópskra eftirlits­stofnana um að viðskipti með sýndarfé gætu verið mjög áhættusöm og að þau fylgdu lögmálum spákaupmennsku.

Þrjú fyrirtæki í rafmyntabransanum hérlendis

Þrír innlendir aðilar eru skráðir hjá Seðla­bankanum sem svokallaðir þjónustu­veitendur viðskipta milli sýndar­fjár, rafeyris og gjald­miðla hér á landi, en enginn skráður þjónustu­veitandi stafrænna veskja.

Fyrir­tækin þrjú í fyrri flokknum heita Myntkaup, Bálkar Miðlun og Skipti­mynt. Samanlögð velta þessara þriggja fyrir­tækja árið 2020 nam tæpum 24 milljónum króna og högnuðust þau samanlagt um rúmar 18 milljónir á starfsemi sinni á því sama ári, samkvæmt ársreikningum félaganna sem að baki þeim standa.

Fylgst almennt með þróun fjártækni

Kjarninn sendi Seðla­bankanum nokkrar spurningar til þess að kanna hvort og hvernig Seðla­bankinn væri að fylgjast með rafmynta­geiranum og í svari bankans segir að bankinn fylgist almennt með þróun fjártækni, þ.m.t. þróun fjölmargra rafmynta, þó að tölulegum upplýsingum um viðskipti eða eignir af þessu tagi sé ekki safnað, eins og áður kom fram.

Í svari bankans er rakið að skráningar- og eftirlits­hlutverk Seðla­bankans sé í samræmi við lög um aðgerðir gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þjónustu­veitendurnir þrír sem skráðir eru hjá Seðla­bankanum eru tilkynninga­skyldir og hafa því ákveðnar skyldur samkvæmt áður­nefndum lögum, meðal annars þá skyldu að tilkynna til skrif­stofu fjármála­greininga lögreglu um viðskipti þar sem grunur leikur á peninga­þvætti eða fjár­mögnun hryðju­verka.

Fjármála­eftirlitið hefur eftirlit með því að framan­greindir aðilar fari að ákvæðum laganna og þeim reglu­gerðum og reglum sem eru settar samkvæmt þeim. Um eftir­litið fer samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármála­starfsemi og þeim sérlögum sem gilda um starfsemi eftirlits­skyldra aðila.

Nánar tiltekið felst eftirlit Seðla­banka Íslands í því að „tryggja að tilkynningar­skyldir aðilar uppfylli kröfur laga [um aðgerðir gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka] og reglu­gerða og reglna sem settar eru á grund­velli þeirra“

Það þýðir með öðrum orðum að Seðla­bankinn á að hafa eftirlit með því hvort fyrir­tækin sem í þessum bransa starfa framkvæmi áhættumat á rekstri sínum, kanni áreiðanleika upplýsinga um viðskipta­vini, eftir atvikum uppruna fjármagns, viðhafi reglu­bundið eftirlit með samnings­sambandi og tilkynni til skrif­stofu fjármála­greininga lögreglu ef grunur er um peninga­þvætti eða fjár­mögnun hryðju­verka.

Fjármála­eftirlit Seðla­banka Íslands fer hvorki með fjárhagslegt eftirlit með viðkomandi skráningar­skyldum aðilum né annars konar eftirlit umfram það sem að ofan greinir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár