Apple eykur fjárfestingar í grænni orku í Kína - „Tími aðgerða er núna“

Hugbúnaðar- og orku­risinn Apple tilkynnti um það á dag að hann ætlaði sér að halda áfram að byggja um orkuverk í Kína sem vinnur raforku úr geislum sólar. Apple hyggst reisa orkuver sem getur framleitt 200 megavött af raforku en nú þegar hefur það reist 40 megavatta orkuver.

Tim Cook, forstjóri Apple, segir í viðtali við Bloomberg að þessar ákvarðanir um uppbyggingu orkuvera, séu aðeins byrjunin á stór­felldum uppbyggingar áformum Apple þegar kemur að vistvænni orku, einkum og sér í lagi í Kína. „Loftslagsbreyingar af manna­völdum eru stærsta áskorun okkar tíma, og tími fyrir aðgerðir er núna,“ segir Cook.


Apple reveals solar energy programs to clean up its manufacturing partners In China https://t.co/LkhK44JycA


— TechCrunch (@TechCrunch) October 22, 2015

Samningurinn um uppbyggingu orkuvera í Kína byggir á samningi við fyrir­tækið Foxconn Technology Group, sem fram­leiðir iPhone og iPad fyrir Apple, en stefnan er sett á að öll starfsemi Apple á heimsvísu verði knúin áfram eingöngu með vistvænni orku, innan fimmtán ára.

Apple hefur vaxið ógnarhratt á síðustu árum, og eru í reynd fá dæmi í sögunni um viðlíka vöxt. Sala á iPhone símum og iPad spjald­tölvum hefur verið gríðar­lega hröð, en um mitt þetta ár átti félagið 203 milljarða Bandaríkja­dala í lausu fé frá rekstri, eða sem nemur um 26 þúsund milljörðum króna. Markaðs­virði félagsins er um 624 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 80 þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár