25 sækja um embætti forstjóra Vegagerðarinnar

Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð til að meta hæfni þeirra 25 umsækj­enda sem sækj­ast eftir emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­innar.

Alls sóttu 25 um emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­innar. Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra skipar í emb­ættið til fimm ára og er miðað við að skip­unin taki gildi 1. júlí næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í frétt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins í dag.

Kjarninn greindi frá því fyrir helgi að umsókn­ar­frestur hefði fram­lengst um tvær vikur vegna þess að það láð­ist að aug­lýsa emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­innar í Lög­birt­inga­blað­inu.

Í frétt ráðu­neyt­is­ins segir að þriggja manna nefnd hafi verið skipuð til að meta hæfni umsækj­enda. Hún starfi í sam­ræmi við lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins og hafi til hlið­sjónar reglur um ráð­gef­andi nefndir sem meta hæfni umsækj­enda um emb­ætti við Stjórn­ar­ráð Íslands.

Í nefnd­inni eiga sæti Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskól­ans í Reykja­vík, Aðal­steinn Ing­ólfs­son, for­stjóri Skinn­eyjar-Þinga­ness og Guðný Elísabet Inga­dóttir, mannauðs­stjóri sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Umsækj­endur eru:

  • Ásrún Rud­olfs­dóttir, for­stöðu­maður 
  • Bergþóra Þor­kels­dóttir, fyrrv. for­stjóri
  • Bjarki Ein­ars­son, sjó­maður
  • Bjarni Óskar Hall­dórs­son, sjálf­stætt starf­andi ráð­gjafi 
  • Einar Pálsson, for­stöðu­maður
  • Einar Pálsson, kenn­ari 
  • Guð­mundur Valur Guð­munds­son, for­stöðu­maður 
  • Hannes Alfreð Hann­es­son, fyrrv. fram­kvæmda­stjóri 
  • Ingunn Lofts­dóttir, verk­efna­stjóri 
  • Kristín Ein­ars­dóttir, sviðs­stjóri 
  • Kristín Linda Árna­dóttir, for­stjóri 
  • Lilja Guðríður Karls­dóttir, fram­kvæmda­stjóri 
  • Magnús Rannver Rafnsson, lektor 
  • Magnús Valur Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri 
  • Ottó Valur Winther, sér­fræð­ingur 
  • Ólafur Kristinn Guð­munds­son, tækni­stjóri 
  • Ólöf Krist­jáns­dóttir, fag­stjóri 
  • Óskar Örn Jónsson, for­stöðu­maður 
  • Ragn­heiður I. Þór­ar­ins­dóttir, for­stöðu­maður 
  • Róbert Ragn­ars­son, sjálf­stætt starf­andi ráð­gjafi 
  • Runólfur Ágústs­son, fram­kvæmda­stjóri 
  • Sesselja Trausta­dóttir, fram­kvæmda­stýra 
  • Sigurður Áss Grét­ars­son, fram­kvæmda­stjóri 
  • Steindór Stein­dórs­son, þjón­ustu­full­trúi 
  • Þor­steinn Egilsson, svæð­is­stjóri
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár