Láðist að auglýsa í Lögbirtingablaðinu

Umsókn­ar­frestur fram­lengd­ist um tvær vikur vegna þess að það láð­ist að aug­lýsa emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­innar í Lög­birt­inga­blað­inu.

Umsókn­ar­frestur um emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­innar rennur út á morgun 19. maí og verður listi með umsækj­endum birtur strax eftir hvíta­sunnu­helg­ina, eða þriðju­dag­inn 22. maí næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í svari sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Embættið var fyrst aug­lýst á Starfa­torgi og í dag­blöðum en sam­kvæmt lögum ber að aug­lýsa það einnig í Lög­birt­inga­blaði og láð­ist að gera það sam­hliða. Því fram­lengd­ist umsókn­ar­frest­ur­inn um tvær vikur eftir að aug­lýs­ingin birt­ist þar.

Í aug­lýs­ingu ráðu­neyt­is­ins kemur fram að leitað sé eftir ein­stak­lingi sem hefur leið­toga­hæfi­leika, sé fram­sýnn í hugsun, hafi sýnt hæfni í sam­skiptum og sam­vinnu og hafi metnað til að ná árangri í þágu almenn­ings og atvinnu­lífs. Krafist er háskóla­mennt­unar á meist­ara­stigi eða sam­bæri­legrar reynslu sem nýt­ist í starfi, árang­urs­ríkrar reynslu af áætl­un­ar­gerð, stjórnun og rekstri og góðrar þekk­ingar og reynslu af stefnu­mótun. Segir jafn­framt í aug­lýs­ing­unni að reynsla af alþjóða­sam­starfi sé kostur og að færni til tján­ingar í ræðu og riti á íslensku og ensku nauð­syn­leg.

Hreinn Har­alds­son hefur gegnt starfi vega­mála­stjóra síðan árið 2008 þegar Kristján L. Möller, þáver­andi sam­göngu­ráð­herra, skip­aði hann í emb­ættið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár