Dótturfélag Kaupfélagsins endurgreiðir 17 milljóna hlutabætur eftir fjölmiðlaumfjöllun

Kjöt­vinnsla Kaup­félags Skagfirðinga nýtti hluta­bótaleiðina en velur nú að endur­greiða 17 milljónir króna.

Vilja ekki ríkisaðstoð
Vilja ekki rík­is­að­stoð Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sem Þórólfur Gíslason stýrir, segir að fyr­ir­tækið leiti allra leiða til að reka fyr­ir­tækið án „sér­tækrar rík­is­að­stoðar“ og þess vegna end­ur­greiði það hluta­bæt­urnar.

Dóttur­félag Kaup­félags Skagfirðinga hefur ákveðið að endur­greiða 17 milljóna króna hluta­bætur sem starfs­menn kjöt­vinnslu fyrir­tækisins, Esju Gæðafæði,  fengu í apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaup­félagi Skagfirðinga.

Stundin fjallaði um notkun Kaup­félags Skagfirðinga á hluta­bóta­leiðinni fyrir helgi.

Í tikynningnni um endur­greiðsluna segir: „Að gefnu til­efni skal tekið fram að kjötvinnsl­an hef­ur aldrei greitt kaup­fé­lag­inu arð. Vegna umræðu um arðgreiðslur er áréttað að Kaup­fé­lag Skag­f­irðinga starfar á grund­velli laga um sam­vinnu­fé­lög. Af þeirri ástæðu hef­ur það alla tíð, eða í 130 ár, nýtt lang­stærst­an hluta fram­legðar starf­sem­inn­ar til innri upp­bygg­ing­ar í stað hefðbund­inna arðgreiðslna hluta­fé­laga til eig­enda sinna.“

50 prósent tekjufall

 Ágúst Andrésson, framkvæmda­stjóri Esju og forstöðu­maður kjöt­afurða­stöðvar Kaup­félags Skagfirðinga, ræddi um þá ákvörðun félagsins að nýta sér hluta­bótaleiðina í frétt Stundarinnar. „Esjan er fyrst og fremst matvæla­fyrirtæki sem þjónustar veitingahús og stór­eldhús á markaði. Það þarf ekkert að hafa mörg orð um það hvaða áhrif það hefur á okkur þegar engir ferðamenn eru hér á landi. Mörgum veitinga­húsum hefur verið lokað og mötuneyti eru lokuð.“ 

Ágúst sagði að tekjufall Esju vegna COVID-19 hafi verið 50 prósent í apríl.

„Það þarf ekkert að hafa mörg orð um það hvaða áhrif það hefur á okkur þegar engir ferðamenn eru hér á landi“ 

Kaupfélag Skagfirðinga keypti kjöt­vinnsluna Esju árið 2016 sem og kjöt­verslunina Gallerí Kjöt. Samkeppnis­eftirlitið þurfti að samþykkja kaupin á kjöt­vinnslunni vegna sterkrar stöðu Kaup­félags Skagfirðinga á kjöt­markaðnum á Íslandi. Esja hefur verið rekin í gamla húsnæði Osta og smjör­sölunnar á Bitru­hálsi í Reykjavík sem kaup­félagið keypti fyrir nokkrum árum. 

Esja var með tæplega 2,8 milljarða tekjur árið 2018 en skilaði nærri 200 milljóna tapi.

Listinn lengist

Í tilkynningunni í dag útskýrir Kaupfélag Skagfirðinga ákvörðun sína um endur­greiðsluna svona: „Með þess­ari ákvörðun er sú stefna kaup­fé­lags­ins und­ir­strikuð að leita allra leiða til þess að ná því mark­miði inn­an sam­stæðunn­ar án sér­tækr­ar aðstoðar frá ís­lenska rík­inu. Þess vegna verður feng­inn rík­is­stuðning­ur á grund­velli hluta­bót­ar­leiðar end­ur­greidd­ur.“

Þetta dóttur­félag Kaup­félagsins bætist við hóp þeirra fyrir­tækja sem hafa ákveðið aðendurgreiða hluta­bætur. Fyrir helgi tilkynni Skeljungur meðal annars um slíka endur­greiðslu í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

FréttirHlutabótaleiðin

Matvæla­fyrirtæki með eignar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bótaleiðina

Matvæla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eignarhalds­félags­félags á lágskatta­svæðinu Möltu sem sagt er hafa öll einkenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bótaleiðina. Framkvæmda­stjórinn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eignar­haldið á Möltu en segir að engin skilyrði vegna eignar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leiðarinnar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár