Pútín er ekki dauður, en það ríkir glundroði í Kreml

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur ekki sést opinber­lega síðan 5. mars síðastliðinn. Myndbands­upptaka sem birtist af honum á föstudag var einmitt það, myndbands­upptaka.

Fyrr í vikunni var sagt frá því í heims­pressunni að hávær orðrómur væri um að Pútín hefði fengið heila­blóðfall og þess vegna aflýst opinberri heimsókn sinni til Astana, höfuð­borgar Kasakstan. Talsmenn forsetans báru þessar fréttir síðar til baka.

Í frétta­skýringu á vef Business Insider er sú hugmynd viðruð að fjarveru Pútíns úr kast­ljósinu megi útskýra með því að yfir standi harðvítug valda­barátta á bakvið tjöldin í Rússlandi. Og að það sem hafi ýtt henni af stað hafi verið morðið á stjórnar­andstæðingnum Boris Nemtsov.

Reuters greindi frá því á fimmtudag að morðið hefði leitt af sér sjaldséða spennu milli ýmissa hópa innan stjórn­kerfis Rússlands sem vanalega standa fast á bak við Pútín.

Auk þess vakti það mikla athygli þegar Andrey Illarinov, fyrrum efnahags­ráðgjafi Pútíns, skrifaði blogg­færslu um það að fjarvera Pútíns benti til þess að valdarán hefði verið framið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár