Vaxandi ólga vegna morðsins á Nemtsov - morðið náðist á myndband

Vaxandi ólga er nú í Moskvu vegna morðs­ins á rúss­neska stjórn­ar­and­stæð­ingnum Boris Nemtsov, en hann var skot­inn til bana í Moskvu á föstu­dags­kvöld. Rússnesk stjórn­völd hafa nú gert opin­bera upp­töku sem náð­ist af morð­svæð­inu á brú í Moskvu, þar sem Nemtsov var skot­inn til bana.

Mynd­bandið er ekki mjög greini­legt, en snjó­plógur virð­ist keyra hægt upp að Nemtsov á brúnni, þar sem hann var á göngu með unn­ustu sinni, og þaðan hleypur maður síðan inn í gráan fólks­bíl, sem kom keyr­andi upp að vett­vangi, og síðan hratt í burtu strax í kjöl­farið. Morðið sjálft sést ekki, en aðeins aðdrag­and­inn, og síðan þegar maður virð­ist koma sér í burtu af staðnum.

Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seti hefur sagt sjálfur að hann muni stýra rann­sókn­inni á morð­inu, sem hann hefur opin­ber­lega for­dæmt. Stuðn­ing­menn Nemtsov og félagar hans, hafa hins vegar sagt það algjör­lega ólíð­andi, þar sem Nemtsov hafi sjálfur talið að Pútín vildi sig feigan.

Stjórn­ar­and­stæð­ingar í Rúss­landi hafa komið saman í stórum hópum í Moskvu í dag og sakað stjórn Pútíns um að bera ábyrgð á morð­inu á Nemtsov.

https://www.youtube.com/watch?v=F7tgxRkBs3g

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár