Pútín sagður hafa fengið heilablóðfall

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, er sagður hafa fengið heila­blóð­fall og þess vegna aflýst opin­berri heim­sókn sinn til Astana, höf­uð­borgar Kasakstan. Talsmenn for­seta­emb­ætt­is­ins í Kreml vísa þessu á bug og segja Pútín við hesta­heilsu.

Eftir að ferð for­set­ans var aflýst sagði heim­ild­ar­maður innan kasösku rík­is­stjórn­ar­innar að Pútín væri alvar­lega veikur. Í kjöl­farið fór orðrómur á flug á sam­fé­lags­miðlum um að rúss­neski for­set­inn hafi fengið heila­blóð­fall og að hann væri jafn­vel lát­inn.

Tals­maður Kremlar sagði hins vegar við frétta­stofu Reuters að hinn 62 ára gamli for­seti væri „eilíft á fundum,“ og að hann eigi fundi á morgun. „Ég veit ekki hvaða fundi við gerum opin­bera.“

Í rúss­neskum stjórn­málum eiga orðrómar frjóan jarð­veg vegna þeirrar miklu leyndar sem ríkir um ferðir og fundi for­set­ans. Þetta er arf­leið frá skipu­lagi Sov­ét­ríkj­anna þar sem reglu­lega spruttu orðrómar um að leið­tog­arnir væru veikir.

Týndur síðan 5. mars


Pútín átti síð­ast opin­beran fund með Matteo Renzi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, 5. mars síð­ast­lið­inn. Fundinum var sjón­varpað beint en síðan hafa aðeins birtst ljós­myndir af for­set­anum á vef Kremlar sem dag­settar eru 10. og 11. mars.

Í gær átti Pútín svo að hitta sendi­nefnd frá Suður Ossetíu í Georgíu en þeir lögðu aldrei af stað frá Georgíu, sam­kvæmt heim­ildum Reuters. Fjarvera for­set­ans og orðrómur um heilsu hans hefur ekki haft áhrif á mark­aði í Rúss­landi.

Síðast var heilsa Pútíns í sviðs­ljós­inu árið 2012 þegar hann sást haltra á opin­berum vett­vangi. Þá var hann sagður þjást af bak­verkjum. Kreml hafa alltaf hafnað þeim sögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár