Kærði staðarhaldarann á Krýsuvík fyrir kynferðislega áreitni

Harpa Signý Benedikts­dóttir kom brotin og buguð inn á Krýsuvík eftir harða og lang­varandi neyslu fíkniefna og með sögu af alvarlegu ofbeldi. Hún segir að á Krýsuvík hafi lífi hennar verið bjargað og sú staðreynd að hún hafi kært staðar­haldarann fyrir kynferðis­lega áreitni breyti engu þar um. Meðferðin þurfi að lifa, en vissir einstak­lingar þurfi að fara. Harpa segir hér sögu sína og ástæður þess að hún kærði manninn.

Harpa Signý
Harpa Signý Hefur tekið líf sitt föstum tökum eftir ára­langa erf­ið­leika tengda neyslu. Mynd:

„Ég kom inn rosalega brotin og veik,“ segir Harpa Signý, sem segist í fyrstu hafa reynt að telja sér trú um að þetta væri ekkert til að hafa áhyggjur af. „Maðurinn var að verða sextugur og ég hélt að hann væri bara svona skemmtilegur karl. Enda hafa allir rosalega gaman af honum. Hann er fróður maður og það var gaman að hlusta á hann tala um lífið og tilveruna. En svo byrjaði hann að fara yfir mörkin. Einu sinni var ég inni á skrif­stofu hjá honum þegar hann kom upp að mér og þefaði af mér. Ég var ekkert að kippa mér upp við það því ég hélt að hann væri bara eitthvað að rugla. Ég fór bara. En svo varð hann alltaf ágengari.“

Harpa Signý lýsir reynslu sinni af meðferðar­heimilinu Krýsuvík í samtali við Stundina. Hún segist hafa upplifað sig varnar­lausa gagnvart starfs­manni, sem hafði áður verið staðinn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár