Kraumandi óánægja hjá Þjóðskrá – starfsmenn kvörtuðu til ráðherra

Hluti starfs­manna Þjóð­skrár sendi á dög­unum bréf á sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, þar sem miklar aðfinnslur voru gerðar við skipu­lags­breyt­ingar og stjórn­un­ar­hætti hjá stofn­un­inni. Mikilvæg verk­efni voru sögð í upp­námi.

Í bréfinu voru skipulagsbreytingar Þjóðskrár sagðar vanhugsaðar og gerðar í litlu samráði við starfsmenn.
Í bréf­inu voru skipu­lags­breyt­ingar Þjóð­skrár sagðar van­hugs­aðar og gerðar í litlu sam­ráði við starfs­menn. Mynd: Þjóðskrá

Starfs­menn Þjóð­skrár Íslands, sem komið hafa að vinnu við skrán­ingu fast­eigna hjá stofn­un­inni, sendu föstu­dag­inn 9. apríl bréf á Sigurð Inga Jóhann­es­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, þar sem miklum áhyggjum var lýst af tíðum breyt­ingum innan stofn­un­ar­innar.

„Skipu­lags­breyt­ingar hafa verið van­hugs­aðar, starfs­manna­velta er mikil og við erum að missa þekk­ingu úr húsi. Stjórn­un­ar­hættir hjá stofn­un­inni hafa leitt til þess að reynslu­miklir starfs­menn hafa séð sig knúna til að segja upp störfum og leita á önnur mið. Þetta er ekki til þess fallið að vekja traust starfs­manna, né ytri hag­að­ila, á þeim verk­efnum sem Þjóðskrá Íslands hefur verið falið. Lítið sam­ráð hefur verið haft við starfs­menn og þekk­ing á þeirra störfum er oft lítil og jafn­vel lít­ils­virt í efsta stjórn­enda­lagi,“ sagði í bréf­inu, sem Kjarninn hefur séð.

Töldu sig knúin til að leita til ráðherra

Bréfið var sent úr nafn­lausu net­fangi og ein­ungis ráð­herra hafði kost á því að sjá und­ir­skrift­irnar sem því fylgdu. Afrit bréfs­ins, án und­ir­skrifta, var einnig sent á for­stjóra Þjóð­skrár, Margréti Hauks­dóttur, en starfs­menn­irnir töldu sig knúna til þess að leita fram­hjá yfir­manni stofn­un­ar­innar og alla leið til ráð­herra með áhyggjur sínar og athuga­semdir.

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið stað­festir við Kjarnann að bréfið hafi borist ráð­herra síð­degis þennan föstu­dag, en bréfið sjálft fæst ekki afhent form­lega frá ráðu­neyt­inu þar sem það varðar mál­efni starfs­manna og telst því und­an­þegið upp­lýs­inga­lögum. Ráðu­neytið telur sömu­leiðis ekki rétt að segja frá því hversu margir starfs­menn und­ir­rit­uðu bréfið, þar sem óskað var eftir því að ráð­herra gætti trún­aðar um und­ir­skrift­irnar.

Það standa þó að minnsta kosti tíu manns á bak­við bréf­send­ing­una, þar sem ekki stóð til að senda bréfið til ráð­herra nema að minnsta kosti tíu núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­menn Þjóð­skrár settu nafn sitt við það. Hjá Þjóðskrá starfa rúm­lega 100 manns.

Töldu líklegt að ekki yrði hlustað á sig

Í bréf­inu sagði að það væri stílað á ráð­herra þar sem starfs­menn teldu að ekki yrði nóg að koma áhyggj­unum á fram­færi innan stofn­un­ar­innar. „Við teljum lík­legt að ekki verði hlustað á okkur, þeim sem skrifa undir verði refsað og að starf þeirra verði í hættu og að litlar sem engar breyt­ingar verði gerðar,“ sagði í bréf­inu.

Þar sagði einnig að mörg mik­il­væg verk­efni sem krefð­ust mik­illar sér­fræði­þekk­ingar og reynslu væru í upp­námi vegna síð­ustu skipu­lags­breyt­inga hjá stofn­un­inni, en nýtt skipu­rit tók gildi hjá Þjóðskrá um ára­mót.

Sömu­leiðis var bent á að frá því Þjóðskrá og Fast­eigna­skrá Íslands hefðu verið sam­ein­aðar árið 2010 hefðu alls átta skipu­lags­breyt­ingar verið gerðar hjá stofn­un­inni, sem starfs­menn­irnir teldu óeðli­lega mik­inn fjölda. „Yfir langt tíma­bil hefur óánægja ríkt meðal starfs­manna sem snýr m.a að stjórnun og hefur hún auk­ist dag frá degi,“ sagði í bréf­inu, en tekið var fram að þetta ætti ekki við um alla stjórn­endur hjá stofn­un­inni.

Vilja viðbragð áður en skaðinn verði meiri

Með því að senda bréfið sögð­ust starfs­menn­irnir vilja vekja athygli á stöðu mála svo hægt yrði að bregð­ast við áður en skað­inn yrði meiri. Þeir segja ekki hægt að kenna utan­að­kom­andi atriðum eins og til dæmis COVID-far­aldr­inum eða hug­myndum um sam­ein­ingu fast­eigna­skrár og Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar um stöðu mála hjá stofn­un­inni, „því þeir stjórn­un­ar­hættir sem við gerum hér athuga­semd við eru ekki nýir af nál­inni.“

Forstjórinn segir „sorglegt“ að þessi leið hafi verið farin

„Það er nátt­úr­lega sorg­legt að það sé farin þessi leið,“ segir Margrét Hauks­dóttir for­stjóri Þjóð­skrár við Kjarnann, innt eftir við­brögðum við þess­ari bréf­send­ingu starfs­manna til ráð­herra. Hún segir engu að síður að málið sé tekið alvar­lega og sé í vinnslu. Verkefni dags­ins sé að vinna með óánægj­una sem sé til staðar.

„Ég hef farið yfir málið með starfs­mönnum. Ég upp­lýsti um bréfið á starfs­manna­fundi strax á mánu­dag­inn og er núna að leita leiða til að jafna ágrein­ing sem er fyrir hendi og vil að við náum sam­tali um það sem betur má fara. Þetta er svo­lítið á frum­stigi, en ákveðin skref hafa verið stigin í þess­ari viku og ég verð að standa vörð um starf­semi Þjóð­skrár Ísland og um alla hina sem standa ekki að þessu bréfi. Þeir eru nátt­úr­lega slegnir, eins og gengur,“ sagði Margrét við blaða­mann í gær, viku eftir að bréfið var sent.

Hún seg­ist sann­færð um að ef sam­tal eigi sér stað þá finn­ist lausnir. „Í svona stórri stofnun eins og Þjóðskrá er, með yfir 100 manns, þá koma upp skin og skúrir og það kemur upp óánægja við skipu­lags­breyt­ingar og það er bara okkar skylda að hlusta á óánægju­raddir og fá það upp á borðið og vinna með það,“ segir Margrét.

Hún segir að frá því að hún tók við sem for­stjóri árið 2013 hafi verið gerðar fimm skipu­lags­breyt­ingar, sem sumar hafi í eðli sínu verið ein­faldar og snert lít­inn hluta starfs­manna. En nýtt skipu­rit hafi verið gefið út nýlega, vissu­lega. Hún segir að skipu­lags­breyt­ing­arnar helgist af þeim skyldum sem á stofn­un­ina séu lagðar með laga­breyt­ingum frá Alþingi.

„Það eru gríð­ar­lega miklar laga­breyt­ingar sem við höfum verið að vinna með síð­ustu þrjú ár og margar nýjar skyldur sem leggj­ast á okkur við laga­breyt­ingar. Þá þurfum við að ein­henda okkur í það þó að við höfum kannski ekki skipu­lagt það, en laga­breyt­ing­arnar eru til að vera í takt við sam­fé­lagið og mæta ákveðnum nýjum þörfum í sam­fé­lag­inu,“ segir Margrét.

Hún seg­ist hafa haldið sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu upp­lýstu um þau skref sem tekin hafa verið inn­an­húss hjá Þjóðskrá í kjöl­far þess að bréfið barst.

Mikilvægt að tapa ekki trausti

Eins og áður sagði kom fram í bréfi starfs­mann­anna að þeir hefðu upp­lifað að þekk­ing þeirra hefði jafn­vel verið lít­ils­virt í efsta stjórn­un­ar­lagi stofn­un­ar­innar. Blaða­maður spurði hvernig Margréti hvernig hún tæki þessum skila­boðum.

„Ég er bara mjög slegin að sjá þessa stað­hæf­ingu og þarf svo­lítið að skilja, með sam­tal­inu, hvað er átt við þar. Í hverju felst þetta? Ég verð að heyra það. Ég get ekki annað en leitað eftir upp­lýs­ingum um hvað er átt við með þessu,“ segir Margrét.

For­stjór­inn segir að Þjóðskrá Íslands hafi notið góðs trausts í sam­fé­lag­inu og í þjón­ustukönn­unum sem gerðar séu reglu­lega. Mik­il­vægt sé að það verði svo áfram og að lausnir finn­ist til að styrkja stofn­un­ina til fram­tíðar.

„Það er mik­il­vægt að við töpum ekki trausti og ég vil leita allra leiða til að ná sam­tali og sátt um þessa óánægju,“ segir Margrét.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár