Stoltenberg: „Verðum að búast við að þetta standi yfir í langan tíma“

Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóri NATO, segir að NATO leitist ekki eftir því að lenda í árekstrum við Rússland og að banda­lagið vilji alls ekki nýtt kalt stríð. Það geti hins vegar ekki horft aðgerðar­laust á þegar friði í Evrópu sé ógnað með aðgerðum Rússa. Þetta kom fram á fundi Stoltenbergs með frétta­mönnum síðdegis í dag.

Aðspurður hvað NATO myndi gera ef ekki væri búið að leysa úr ástandinu í Úkraínu, þar sem Rússland hefur innlimað Krímskagan og er talið styðja við aðskilnaðar­sinna í austur­hluta landsins með vopnum og vistum, eftir þrjú ár sagði Stoltenberg: „Við verðum að búast við að þetta muni standa yfir í langan tíma.“

Tvær ákvarðanir teknar til að styðja við framtíðina


Fundur utan­rík­is­ráð­herra NATO-ríkj­anna 28 stendur yfir í dag og á morgun í höf­uð­stöðvum banda­lags­ins í Brussel. Um klukkan hálf fjögur síð­degis hófst annar frétta­manna­fundur Stol­ten­bergs í dag þar sem hann upp­lýsti um nið­ur­stöðu þeirra við­ræðna sem átta hafa sér stað eftir hádegið. Kjarninn greindi frá efni fyrri fund­ar­ins fyrr í dag.

Tvær ákvarðanir voru teknar í þessari lotu. Í fyrsta lagi mun verða myndaður tíma­bundinn viðbragðs­herafli (e. interim spearhead force) sem mun geta brugðist við ef á þarf að halda innan örfárra daga eftir að þjónustu hans verður óskað. Þessi herafli, sem verður undir merkjum NATO, mun aðallega verða saman­settur af hermönnum frá Þýska­landi, Hollandi og Noregi.

Í öðru lagi var ákveðið að viðhalda viðveru banda­lagsins við austur-landamæri þess. Ástæða þessa er sú ógn sem stafar af tilburðum Rússa í Úkraínu og víðar á áhrifa­svæði ríkisins gagnvart þeim NATO-aðildar­ríkjum sem eiga landamæri að óróa­svæðum.

Öll 28 ríki NATO munu taka þátt í þessum aðgerðum, að sögn Stoltenberg. Á fundinum fyrr í dag sagði hann: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýðir að Ísland mun einnig leggja eitthvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé herlaust.

Á fundinum fyrr í dag sagði Jens Stoltenberg: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýðir að Ísland mun einnig leggja eitthvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé herlaust. Á myndinni sjást allir utan­ríkis­ráðherrar NATO-ríkjanna ásamt Stoltenberg.

Umfangsmesta áætlun NATO frá lokum kalda stríðsins


Báðar ákvarð­an­irnar eru til þess fallnar að styðja við aðgerð­ar­á­ætl­un­ina Rea­di­ness Action Plan (RAP) sem sam­þykkt var að ráð­ast í á síð­asta leið­toga­fundi NATO-ríkj­anna sem hald­inn var í Wales í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Um er að ræða umfangs­mestu aðgerð­ar­á­ætlun sem NATO hefur ráð­ist í að hrinda í fram­kvæmd frá lokum kalda stríðs­ins.Hún felur meðal ann­ars í sér að um fjögur þús­und manna við­bragðs­her­lið verði myndað undir hatti NATO sem á að geta brugð­ist við innan tveggja sól­ar­hringa ef Rússar ógna ein­hverju þeirra 28 landa sem eru aðilar að banda­lag­inu í dag. Úkraína er ekki aðili, þótt ríkið sé í nánu sam­starfi við NATO. Það eru hins vegar Eystra­salts­ríkin og Pólland og þar ótt­ast ráða­menn, kannski eðli­lega í ljósi sög­unnar, að Rússar gætu fram­lengt áhrifa­krumlu sína í átt að þeirra landa­mærum í náinni fram­tíð.

Á fundinum fyrr í dag sagði Jens Stoltenberg: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýðir að Ísland mun einnig leggja eitthvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé herlaust.
Á fund­inum fyrr í dag sagði Jens Stol­ten­berg: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýðir að Ísland mun einnig leggja eitt­hvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé her­laust.

John Kerry, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, og sendi­nefnd hans áttu fund með Stoltenberg fyrr í dag

15742976330_63993f7b5a_z
15742976330_63993f7b5a_z

Á leiðtoga­fundunum í Wales var einnig ákveðið að auka fjárútlát í varnarmál á meðal aðildar­ríkja, reyndar með þeim fyrirvara að þau þyrftu að haldast í hendur við aukna þjóðar­framleiðslu. Þ.e. ef þjóðar­framleiðsla eykst þá skuld­bundu þau ríki sem halda úti her sig til að auka framlög til varnar­mála. Það er orðið ansi langt síðan að slíkt var gert, enda nánast fordæma­lausir friðar­tímar staðið yfir í Evrópu undan­farin aldar­fjórðung eftir lok kalda stríðsins. Utan átakanna á Balkans­skaga á tíunda áratugnum hefur ríkt friður í álfunni. Þar til núna.

Er nýtt kalt stríð að hefjast?


Margir blaða- og frétta­menn sem eru staddir hér í höf­uð­stöðvum NATO vegna fundar utan­rík­is­ráð­herr­anna telja að nýtt kalt stríð sé í upp­sigl­ingu. Þeir eru reyndar lang­flestir frá mið- og austur Evr­ópu­ríkjum sem eru sögu­lega brennd af valda­brölti Rússa og búast, kannski eði­lega, við hinu versta. Fjöl­miðla­fólkið finnur stað­fest­ingu fyrir þennan ótta sinn í þeim þunga sem fylgir harð­orðum yfir­lýs­ingum stjórn­enda NATO og utan­rík­is­ráð­herra aðild­ar­ríkj­anna um aðgerðir Rússa.

Fjöl­miðla­fólkið finnur stað­fest­ingu fyrir þennan ótta sinn í þeim þunga sem fylgir harð­orðum yfir­lýs­ingum stjórn­enda NATO og utan­rík­is­ráð­herra aðild­ar­ríkj­anna um aðgerðir Rússa.

Vestrænu blaða­mennirnir virðast sumir telja að NATO-báknið sé að hoppa á tækifærið til að gera sig gildandi á ný og blási því út kassann, eftir að hafa verið nokkurs konar bastarður án raun­verulegs varnar­hlutverks í álfunni sem það fyrst og síðast að verja undan­farna áratugi. Stærstu verkefni NATO í dag eru hernaðar­aðgerðir í Afganistan (lýkur um næstu áramót), viðvera og stuðningur í Kosovo, eftirlit í Miðjarðar­hafinu og sjóræningja­veiðar við strendur Afríku. Nýtt kalt stríð myndi auka mikilvægi banda­lagsins til muna og auðveldara yrði að sannfæra þá sem borga fyrir tilvist þess, skatt­greiðendur í Evrópu og Norður-Ameríku, um það mikilvægi ef ógnin er við dyra­karminn hjá þeim.

Þórður Snær Júlíusson skrifar frá höfuð­stöðvum NATO í Brussel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár