Um 68 prósent kínverskra karla reykja en aðeins 3,2 prósent kvenna

Um 68 prósent kínverskra karlmanna reykja sígarettur reglulega en aðeins 3,2 prósent kínverskra kvenna. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós sem birt var í lækna­vísinda­ritinu The Lancet 8. október síðastliðinn. Búist er við því að þessar gríðar­lega miklu reykingar kínverskra karlmanna muni valda miklum vanda fyrir heilbrigðis­kerfið í Kína á næstu árum, og kostnaður vegna marg­víslegra hliðar­áhrifa á lýðheilsu þjóðarinnar mun fyrir­sjáanlega aukast hratt.

Zhengming Chen, prófessor við Háskólann í Oxford og einn þeirra sem framkvæmdi rann­sóknina, segir niður­stöðurnar vera sláandi, en hafi ekki komið rann­sakendum sérstak­lega á óvart þar sem reykingar karlmanna í Kína séu á alla vitorði. Eitt af því sem sé sláandi er hversu innbyggt það virðist í samfélagið í Kína, að ungir karlmenn, í kringum tvítugt, byrji að reykja og geri það síðan að sínum lífstíl.

Samkvæmt rann­sókninni deyja árlega um ein milljón vegna reykinga í Kína en vegna þess hve reykingar eru almennar um þessar mundir, þá er talið að talan verði komin í tvær milljónir árið 2030 og fimm milljónir árið 2050, eða eftir 35 ár. Mikil þörf sé á því að grípa inn í þessa þróun, bæði í gegnum lög og reglur, en einnig í gegnum uppfræðslu, að því er segir í rann­sókninni, sem Quartz vitnar til í umfjöllun sinni.

Í Peking einni er talað um að fjórar milljónir manna reyki daglega, og að meðaltali þá sé neyslan um 14,6 sígarettur á dag. Einstaklingar sem reykja eru taldir vera ríflega 300 milljónir en heildar­íbúafjöldi er um 1,4 milljarðar manna. Undir lok árs 2013 tilkynntu stjórn­völd um bann við reykingum á opinberum vettvangi, og átti bannið að útfærast á einu ári. Víðs vegar um landið hefur það ekki verið gert ennþá, og benda rann­sóknir til þess að ekki hafi þrengt svo að þeim sem reykja, að dregið hafi úr reykingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár