Amnesty International styður afglæpavæðingu vændis

Fulltrúar Amnesty International kusu í dag með tillögu um að samtökin styðji afglæpa­væðingu vændis. Tillagan sem var samþykkt á aðalfundi samtak­anna í dag kveður jafnframt á um að einstaklingar í kynlífs­iðnaði njóti fullra og jafnra mann­réttinda og verndar gegn ofbeldi, misnotkun og mansali. Málið fer nú til stjórnar Amnesty International sem mun móta og innleiða nýja stefnu samtak­anna.

Þetta kemur fram á vefsíðu Amnesty International í dag en aðal­fundur samtak­anna hefur farið fram síðustu daga í Dyflinni. Umdeildasta málið á dagskrá var tillaga um að samtökin styðji afglæpa­væðingu vændis. Amnesty International hefur til þessa ekki haft afgerandi skoðun á málaflokkinum. Greint var frá tillögunum sem lágu fyrir fundinn í Kjarnanum í lok júlí.

Samkvæmt ályktuninni, sem var samþykkt af fulltrúum Amnesty International á fundinum, skal yfir­stjórn samtak­anna nú móta stefnuna frekar. Stefnan skal tala fyrir afglæpa­væðingu hvers kyns kynlífs­starfsemi. Auk þess á stefna samtak­anna að tala fyrir fullum réttindum einstaklinga sem starfa við kynlífs­iðnað. Það er mat Amnesty að með þessu móti séu mann­réttindi fólks í kynlífs­iðnaði best tryggð og að afglæpa­væðing dragi úr áhættu á misnotkun og ofbeldi sem fólkið býr við.

„Við vitum að þetta mikilvæga mann­réttinda­vandamál er geysilega flókið og þess vegna höfum við fjallað um vanda­málið út frá sjónar­horni alþjóð­legum mann­réttindum. Við leituðum einnig eftir sjónar­miðum frá ólíkum heims­hornum innan samtak­anna til að fá ólík sjónarmið,“ segir Salil Shetty, yfirmaður Amnesty International, á vefsíðu samtak­anna.

Umdeild stefnumótun Amnesty


Það vakti hörð við­brögð og deilur í síð­asta mán­uði þegar frétt­ist að Amnesty International hyggð­ust taka fyrir stefnu­breyt­ingu um lög­leið­ingu vændis og kyn­lífs­starf­semi á aðal­fundi sínum. Erlendir fjöl­miðlar hafa fjallað um málið, meðal ann­ars BBC sem birti í dag frétta­skýr­ingu um kosti og galla fylk­ing­anna tveggja, það eru þeir sem eru fylgj­andi afglæpa­væð­ingu vændis ann­ars vegar og þeir sem eru á móti því hins vegar. Bent er á að báðar fylk­ingar telja sig berj­ast fyrir mann­rétt­indum þeirra sem eru í kyn­lífs­iðn­að­inum.

Á Íslandi sendu sjö kvenna­samtök frá sér sameiginlega yfir­lýsingu þar sem þær lýstu sig andvígar boðaðri stefnu Amnesty International um afglæpa­væðingu. „Ef Amnesty International mælir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólgum og vændis­kaupendum þar með gefin friðhelgi og mann­réttindi kvenna í vændi fótum troðin. Slík stefna myndi skaða þann mikilvæga trúverðug­leika og það traust sem Amnesty nýtur í dag. Það má ekki gerast,“ sagði í yfir­lýsingunni.

Gunnar Bragi Sveinsson, utan­ríkis­ráðherra, tjáði sig einnig um málið um liðna helgi og sagðist hugsi yfir tillögunum „Samkvæmt tillög­unni verða kaup, sala, milli­ganga um vændi og rekstur vændis­húsa látinn óátalinn, eins og tíðkast bæði í Hollandi og Þýska­landi þar sem vændis­iðnaðurinn blómstrar og mannsal áfram vandamál. Er það slíkt sem heims­byggðin þarfnast? Á Íslandi hefur sænska leiðin verið valin og það sama á við um þó nokkur ríki í kringum okkur. Sú leið er ekki án galla en forsendurnar eru skýrar, að banna vændis­kaup en ekki að refsa þeim sem neyðast til að stunda vændi. Vændi er ekki atvinnu­grein og á ekki að fá að þrífast sem slík. Mér finnst hryggilegt til þess að hugsa að á sama tíma og við hvetjum karla um allan heim til að leggja sitt af mörkum til ‪#heforshe og koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og tryggja kynja­jafnrétti þá skulu ein stærstu og virtustu mann­réttinda­samtök heims leggja þessar tillögur fram,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár