Gunnar Bragi gagnrýnir tillögu Amnesty um að afglæpavæða kaup og sölu á vændi

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra er hugsi yfir tillögu sem liggur fyrir alþjóða­þingi mann­réttinda­samtakanna Amnesty International sem fram fer í Dublin nú um helgina þar sem lagt er til að afglæpa­væða bæði kaup og sölu á vændi. Hann segir að sér finnist það hryggilegt að hugsa til þess að á sama tíma og karlar um allan heim séu hvattir til að leggja sitt að mörkum til að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og tryggja kynja­jafnrétti í heforshe-átakinu þá séu ein stærstu og virtustu mann­réttinda­samtök heims að leggja þessar tillögur fram. Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu á Facebook sem Gunnar Bragi birti í morgun.

Þar segir hann að samkvæmt tillög­unni verði „kaup, sala, milli­ganga um vændi og rekstur vændis­húsa látinn óátalinn, eins og tíðkast bæði í Hollandi og Þýska­landi þar sem vændis­iðnaðurinn blómstrar og mannsal áfram vandamál. Er það slíkt sem heims­byggðin þarfnast? Á Íslandi hefur sænska leiðin verið valin og það sama á við um þó nokkur ríki í kringum okkur. Sú leið er ekki án galla en forsendurnar eru skýrar, að banna vændis­kaup en ekki að refsa þeim sem neyðast til að stunda vændi. Vændi er ekki atvinnu­grein og á ekki að fá að þrífast sem slík.“





Ég er hugsi yfir til­lögu sem liggur fyrir alþjóða­þingi mann­rétt­inda­sam­tak­anna Amnesty International sem fram fer í...

Posted by Gunnar Bragi Sveinsson on Saturday, August 8, 2015

Kjarninn greindi frá því í lok júlí

að Amnesty International væru að íhuga að setja sér stefnu um að afglæpa­væða eigi vændi. Það hefði komið fram í drögum um stefnu sem lögð var fyrir heimsþing samtakana sem fer fram nú um helgina.

Tillagan hefur vakið upp hörð viðbrögð víða um heim, og Ísland er þar engin undan­tekning. Á miðvikudag sendu sjö kvenna­samtök frá sér sameiginlega yfir­lýsingu þar sem þau leggjast gegn því að Amnesty International setji sér stefnu um að afglæpa­væða eigi vændi. „Ef Amnesty International mælir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólgum og vændis­kaupendum þar með gefin friðhelgi og mann­réttindi kvenna í vændi fótum troðin. Slík stefna myndi skaða þann mikilvæga trúverðug­leika og það traust sem Amnesty nýtur í dag. Það má ekki gerast,“ segir í yfir­lýsingunni.

Undir hana skrifuðu forsvars­menn Stígamóta, Kvenna­athvarfsins, Kvenna­ráðgjafarinnar, Samtaka kvenna af erlendum uppruna, Kven­félaga­sambands Íslands, Kven­réttinda­félagsins og Feminstafélags Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár