Sjö kvennasamtök á Íslandi leggjast gegn afglæpavæðingu vændis

Sjö íslensk kvenna­samtök sendu frá sér sameiginlega yfir­lýsingu í dag þar sem þau leggjast gegn því að mann­réttinda­samtökin Amnesty International setji sér stefnu um að afglæpa­væða eigi vændi. „Ef Amnesty International mælir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólgum og vændis­kaupendum þar með gefin friðhelgi og mann­réttindi kvenna í vændi fótum troðin. Slík stefna myndi skaða þann mikilvæga trúverðug­leika og það traust sem Amnesty nýtur í dag. Það má ekki gerast,“ segir í yfir­lýsingunni. Undir hana skrifa forsvars­menn Stígamóta, Kvenna­athvarfsins, Kvenna­ráðgjafarinnar, Samtaka kvenna af erlendum uppruna, Kven­félaga­sambands Íslands, Kven­réttinda­félagsins og Feminstafélags Íslands.

Um næstu helgi funda alþjóða­samtökin Amensty International í Dublin á Írlandi. Fyrir fundinum liggur tillaga um að taka upp þá stefnu að afglæpa­væða eigi vændi. Eins og Kjarninn greindi fyrstur íslenskra fjölmiðla frá þá var drögum að fundinum lekið á netið og vöktu hörð viðbrögð. Amnesty hefur aldrei sett sér stefnu í þessum málum, en umræðan um afglæpa­væðingu hefur átt sér stað innan samtak­anna um nokkurt skeið.Íslands­deild Amnesty hefur ekki tekið afstöðu til draganna sem lögð hafa verið fram, að sögn Önnu Lúðvíks­dóttur, framkvæmda­stjóra deildarinnar, þegar Kjarninn fjallaði um málið í síðustu viku.

„Að okkar mati er vændi ekki atvinnu­grein. Vændi er ofbeldi og frjáls sala á fólki samræmist ekki okkar skilgreiningu á mann­réttindum. Þar að auki er nær ógjörn­ingur að skilja á milli vændis og mansals. Kaupendur hafa ekki hugmynd um hvort þær konur sem þeir kaupa, eru að selja sig af fúsum og frjálsum vilja eða þær eru gerðar út af manseljendum. Ef Amnesty vill uppræta mansal, er mikilvægt að samtökin geri sér grein fyrir að það verður ekki gert nema með því að minnka eftir­spurn eftir vændi. Samhliða því þarf að bjóða upp á félagsleg úrræði fyrir þau sem stunda vændi og leiðir út,“ segir í yfir­lýsingu kvenna­samtakanna sjö. Hana má lesa í heild hér að neðan en í yfir­lýsingunni er meðal annars farið yfir mismun­andi fyrir­komulag á lögum gegn vændi í heiminum.


Yfir­lýsingin í heild:

Friðhelgi fyrir dólga og vændiskaupendur?

Amnesty International hefur í meira en fimmtíu ár unnið þrekvirki. Stuðlað að lífi án ofbeldis, réttlæti og mann­réttindum um allan heim. Samtökin njóta mikils trausts og virðingar og von okkar er að svo megi verða áfram.


Helgina 7.- 11. ágúst fundar alþjóða­hreyfing Amnesty International í Dublin á Írlandi. Fyrir fundinum liggur tillaga um að Amnesty líti svo á að vændi eigi að gefa frjálst. Kaup, sala, milli­ganga um vændi og rekstur vændis­húsa verður samkvæmt tillög­unni látið óatalið. Allt í nafni mann­réttinda fólks í vændi. Ef tillagan verður samþykkt eru það alvarleg mistök sem ganga þvert á þá mann­réttinda­baráttu sem Amnesty er þekkt fyrir.


Að okkar mati er vændi ekki atvinnu­grein. Vændi er ofbeldi og frjáls sala á fólki samræmist ekki okkar skilgreiningu á mann­réttindum. Þar að auki er nær ógjörn­ingur að skilja á milli vændis og mansals. Kaupendur hafa ekki hugmynd um hvort þær konur sem þeir kaupa, eru að selja sig af fúsum og frjálsum vilja eða þær eru gerðar út af manseljendum. Ef Amnesty vill uppræta mansal, er mikilvægt að samtökin geri sér grein fyrir að það verður ekki gert nema með því að minnka eftir­spurn eftir vændi. Samhliða því þarf að bjóða upp á félagsleg úrræði fyrir þau sem stunda vændi og leiðir út.


Í heiminum er tekist harkalega á um það hvernig nálgast eigi vændi. Sumstaðar eru bæði kaup og sala bönnuð. Þannig voru íslenskar konur í vændi sekar að lögum fram til ársins 2007. Annars staðar hefur vændi verið gefið frjálst og þekktustu dæmin um þá leið eru Þýskaland og Holland. Í þeim löndum hefur vændis­iðnaðurinn vaxið mjög og í skjóli hans þrífst mansal sérlega vel. Í þeim löndum hefur líf kvenna í vændi ekki orðið öruggara, en dólgar, vændishúsa­eigendur og vændis­kaupendur hafa hins vegar stöðu heiðvirðra kaupmanna og viðskipta­vina.


Í Svíþjóð var vændi skilgreint sem ofbeldi gegn konunum sem það stunda og lög voru sett í samræmi við þann skilning árið 1999. Þannig var sala á vændi í lagi, en kaup á fólki ólögleg, svo og auðvitað milli­ganga um vændi og rekstur vændis­húsa. Noregur og Ísland fóru að dæmi Svía árið 2009, eftir langa baráttu sameinaðrar kvenna­hreyfingar og fleiri aðila. Síðar hafa Kanada og Norður-Írland bæst í hópinn. Jafnréttis­nefnd Evrópu­þingsins lét gera úttekt á leiðum í barátt­unni gegn vændi og mansali og samþykkti í framhaldi af því að mælast til þess við aðildar­löndin að þau færu að dæmi Svía og bönnuðu kaup á vændi.


Norræna leiðin er þekkt um allan heim sem sú árangurs­ríkasta og réttlátasta í barátt­unni gegn vændi og mansali. Í Noregi þar sem lögunum hefur verið framfylgt er talið að vændi hafi minnkað um 25%. Þar hefur ofbeldi gegn fólki í vændi ekki aukist, eftir­spurnin hefur minnkað og viðhorfs­breyting hefur átt sér stað. Viðhorfs­könnun sem gerð var á Íslandi af Gallup árið 2008 sýndi að meiri hluti bæði karla og kvenna og meirihluti fólks í öllum þáverandi flokkum vildi banna kaup á vændi.


Stígamót þjónusta fólk sem beitt hefur verið kynferðis­ofbeldi. Þar taka árlega 35-50 konur og nokkrir karlar þátt í sjálfs­hjálpar­starfi vegna afleiðinga klám­iðnaðarins. Afleiðingarnar eru sambærilegar við afleiðingar annars kynferðis­ofbeldis, þ.e.a.s. skömm, kvíði, þunglyndi, léleg sjálfs­mynd og sjálfsvígs­hugsanir, en á ýmsa vegu ýktari. Þó ekki væri nema þess vegna, getum við í sameinaðri kvenna­hreyfingu ekki setið hjá og beðið þess sem verða vill í Dublin. Við buðum Herði Helga Helgasyni formanni Íslands­deildarinnar til fundar við okkur þann 4. ágúst og kynntum honum viðhorf okkar. Á fundinum gaf formaðurinn ekki upp afstöðu Íslands­deildar Amnesty og það veldur okkur áhyggjum.


Ef Amnesty International mælir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólgum og vændis­kaupendum þar með gefin friðhelgi og mann­réttindi kvenna í vændi fótum troðin. Slík stefna myndi skaða þann mikilvæga trúverðug­leika og það traust sem Amnesty nýtur í dag. Það má ekki gerast.


Stígamót, Kvenna­athvarfið, Kvenna­ráðgjöfin, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Kven­félaga­samband Íslands, Kven­réttinda­félagið, og Femínista­félag Íslands skora á Íslands­deild Amnesty International að halda á lofti norrænu leiðinni í Dublin um helgina og beita sér af alefli fyrir því að tillagan um að vændi verði gefið frjálst verði felld.


F. h. Stígamóta, Kvenna­athvarfsins, Kvenna­ráðgjafarinnar, Samtaka kvenna af erlendum uppruna, Kven­félaga­sambands Íslands, Kven­réttinda­félagsins, og Femínista­félags Íslands


Guðrún Jóns­dóttir


Sigþrúður Guðmunds­dóttir


Þorbjörg Inga Jóns­dóttir


Anna Wozniczka


Una María Óskars­dóttir


Fríða Rós Valdimars­dóttir


Una Hildar­dóttir


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár