Amnesty á Íslandi hefur ekki tekið afstöðu til umdeildra vændismála

Mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International íhuga að setja sér stefnu um að afglæpa­væða eigi vændi, sam­kvæmt drögum að stefnu sem verður lögð fyrir heims­þing sam­tak­anna eftir rúma viku. Drögunum var lekið á netið og þau hafa vakið upp hörð við­brögð og deilur.

Íslands­deild Amnesty hefur ekki tekið afstöðu til drag­anna sem lögð hafa verið fram, að sögn Önnu Lúð­víks­dóttur, fram­kvæmda­stjóra deild­ar­innar. „Við teljum mik­il­vægt að hlusta á öll sjón­ar­mið og athuga­semdir sem fram koma. Á heims­þingi sam­tak­anna verða allir fletir ræddir og afstaða Íslands­deildar Amnesty verður ákvörðuð með það að augna­miði að mann­rétt­indi þessa fólks sem þarna um ræðir verði sem best tryggð,“ segir Anna í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Amnesty hefur aldrei sett sér stefnu í þessum málum, en umræðan um afglæpa­væð­ingu hefur átt sér stað innan sam­tak­anna um nokk­urt skeið. Í drög­unum kemur fram að málið hafi verið skoðað und­an­farin tvö ár og meðal ann­ars lagst í rann­sóknir sem hafi leitt til þess­arar nið­ur­stöðu.

Í stefnu­drög­unum kemur fram að Amnesty vilji sem mesta vernd mann­rétt­inda þeirra sem vinni „kyn­lífs­vinnu“ (e. sex work). Meðal ann­ars verði þetta best gert með afglæpa­væð­ingu vændis, þar með talið að það sé ekki refsi­vert að kaupa vændi, hafa milli­göngu um það og reka vænd­is­hús. Þó breyti það ekki afstöðu sam­tak­anna til þess að man­sal og nauð­ung­ar­vinna séu gróf mann­rétt­inda­brot sem eigi að refsa fyrir og sömu­leiðis sé allt vændi barna gróf mann­rétt­inda­brot.

CATW, sem er banda­lag gegn man­sali á konum (Coalition Against Trafficking in Women), hefur mót­mælt þessum áformum og hefur fengið til liðs við sig yfir 400 kven­rétt­inda­sam­tök, önnur mann­rétt­inda­sam­tök og ein­stak­linga frá yfir þrjá­tíu löndum sem mót­mæla þessum fyr­ir­ætl­unum harð­lega. Guðrún Jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, er meðal þeirra sem skrifa undir bréfið, en meðal ann­arra eru frægar Hollywood-stjörnur eins og Kate Winslet, Lena Dunham og Meryl Streep auk þess sem fjöldi kvenna sem hafa hætt í vændi eru á list­anum.

Í bréfi þeirra kemur fram að það sé rétt hjá Amnesty að ekki eigi að refsa ein­stak­lingum sem eru keyptir og seldir í vændi. Hins vegar vilji Amnesty sam­kvæmt drög­unum einnig afglæpa­væða þriðju aðila sem hagn­ist á vændi og þá sem kaupa vændi. „Þetta myndi styrkja stoðir marg­millj­arða bransa sem leggst á útskúf­að­ustu og við­kvæm­ustu hópana til kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar í við­skipta­skyni,“ segir í bréf­inu. Þar segir einnig að besta leiðin til þess að vernda mann­rétt­indi fólks í vændi sé að veita víð­tæka þjón­ustu og leiðir út úr vændi, ef fólk vill hætta, og að láta þá sem nýta sér fólk svara til saka. „Nokkrar rík­is­stjórnir hafa nú þegar sam­þykkt lög sem end­ur­spegla þessa kynja- og mann­rétt­inda­nálgun,“ segir í bréf­inu og er þá átt við nor­rænu leið­ina svoköll­uðu (áður þekkt sem sænska leiðin) sem er meðal ann­ars í gildi á Íslandi. Sú leið felur í sér að ekki er ólög­legt að selja vændi, en það er ólög­legt að kaupa það og hafa milli­göngu um það. Þá hafi Evr­ópu­þingið hvatt til þess að ríki afglæpa­væði ein­göngu þá sem selja vændi og refsi aðeins þeim sem kaupa það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár