Eygló segir aðgerðir stjórnvalda ráðast af sjálfboðavinnu almennings – Árni Páll varar við „ölmusuvæðingu“

Félagsmála­ráðherra hvetur almenning til að bjóða fram aðstoð sína og forsætis­ráðherra segir óraunhæft að Ísland taki á móti fimm þúsund flótta­mönnum. Árni Páll Árnason, formaður Samfylk­ing­ar­innar, gagnrýnir þau harðlega.

Eygló Harðar­dóttir, félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, segir að það hve mörgum flótta­mönnum Ísland geti tekið á móti ráðist af sjálfboða­vinnu fólks. Þetta kom fram í frétta­tíma Stöðvar 2 í gærkvöldi.

„Núna þurfum við einfald­lega á því að halda að þær þúsundir sem hafa stigið fram og hvatt okkur áfram til góðra verka hjálpi okkur við verkefnið, hafi samband við okkur í velferðar­ráðuneytinu, hafi samband við Rauða krossinn og íhugi það, og spyrji einfald­lega hvað það geti gert til að hjálpa til,“ sagði Eygló í viðtali.

„Ef við náum að taka höndum saman hvað þetta varðar, þá þurfum við ekki endilega að setja einhverja hámarks­tölu á fjölda flótta­manna sem við getum tekið við“

Kallar eftir sjálfboðaliðum

Aðspurð hversu mörgum flótta­mönnum stjórn­völd gætu tekið á móti svaraði Eygló: „Það byggist einmitt akkúrat á þessu. Ef þú ert með laust starf að hafa samband við Rauða krossinn eða velferðar­ráðuneytið. Ef þú ert með íbúð til leigu, að hafa samband, því við erum nú þegar með fólk í landinu sem þarf á þessari aðstoð að halda. Ertu tilbúinn að bjóða þig fram sem sjálfboða­liði og mæta og hjálpa til með að flótta­menn geti lært á íslenska banka­kerfið sem er ekki einfalt? Aðstoð við einfald­lega bara matar­innkaup og marg­vísleg önnur verkefni sem þarf að vinna. Og ef að þetta allt, ef við náum að taka höndum saman hvað þetta varðar, þá þurfum við ekki endilega að setja einhverja hámarks­tölu á fjölda flótta­manna sem við getum tekið við.“

Gagnrýnir ölmusuvæðingu

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir Eygló harðlega fyrir að ölmusu­væða aðstoð við flótta­fólk. „Það er vissulega mikilvægt að almenningur styðji við móttöku flótta­manna með sjálfboða­starfi, eins og rík hefð er fyrir hér á landi. En stjórn­völd geta ekki afneitað ábyrgð sinni á móttöku flótta­manna, eins og ráðherrann gerir. Þetta er samfélagslegt verkefni, en ekki verkefni sem hægt er að ölmusu­væða,“ skrifaði Árni Páll í stöðu­uppfærslu á Facebook í gærkvöldi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár