Bandaríkin og Ísrael ráðast á Íran

„Markmið okkar er að verja bandarísku þjóðina með því að útrýma yfir­vofandi ógnum frá írönsku stjórninni,“ sagði Donald Trump í ávarpi.

Bandarísk og ísraelsk herlið gerðu samhæfðar loft­árásir á skotmörk í Íran í morgun. Sprengingar heyrðust í Teheran og í fleiri borgum landsins, meðal annars í Isfahan og Karaj, samkvæmt írönskum miðlum.

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, staðfesti árásirnar í ávarpi sem hann birti í formi myndbands á Truth Social.

„Markmið okkar er að verja bandarísku þjóðina með því að útrýma yfir­vofandi ógnum frá írönsku stjórninni, sem er illvígur hópur af mjög hörðu og hræðilegu fólki. Hættuleg starfsemi hennar stefnir Banda­ríkjunum, hermönnum okkar, herstöðvum okkar erlendis og banda­mönnum okkar um allan heim í beina hættu.“

Umfangsmiklar aðgerðir í undirbúningi

Bandarískur embættis­maður, sem ræddi við New York Times með skilyrði um nafnleynd, sagði að árásirnar væru víðtækari en aðgerðir sem framkvæmdar voru fyrr á árinu. Þá beindust sprengju­árásir að þremur kjarnorku­tengdum stöðvum í landinu.

Samkvæmt sama embættismani eru árásirnar framkvæmdar af orrustu­flugvélum sem taka á loft frá herstöðvum og flug­móðurskipum Banda­ríkjanna í Mið-Austur­löndum. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvaða mannvirki voru skotmörk að þessu sinni, en talið er að herferðin geti staðið yfir í nokkra daga.

Árásirnar hófust snemma morguns að staðar­tíma, þegar vinnuvika Írana var að hefjast og skólar í fullum gangi.

Misheppnaðar viðræður

Síðustu daga hafa átt sér stað diplómatískar tilraunir til að draga úr spennu. Fulltrúar Banda­ríkjanna og Írans funduðu í Sviss á fimmtudag um framtíð kjarnorku­áætlunar stjórn­valda í Teheran, en fundinum lauk án samkomu­lags.

Spenna á svæðinu hefur farið vaxandi frá því í janúar, þegar Trump hét því að styðja mótmælendur í Íran. Mann­réttinda­samtök hafa sagt að þúsundir hafi látið lífið í aðgerðum íranskra stjórn­valda gegn mótmælendum.

Ísrael undirbýr neyðarráðstafanir

Í Ísrael hafa stjórn­völd lýst yfir neyðar­ástandi og gripið til víðtækra öryggis­ráðstafana vegna hættu á hefndar­aðgerðum. Varnarmála­ráðherrann, Israel Katz, staðfesti þátttöku landsins í árásunum í opinberri yfir­lýsingu.

Loftvarna­sírenur heyrðust víða um landið og tilkynnt var að skólum og vinnu­stöðum yrði lokað tíma­bundið. Þá var lofthelgi landsins takmörkuð þar til frekari skýring lægi fyrir á viðbrögðum Írans.

Ekki hafa borist opinberar upplýsingar um mannfall eða umfang tjóns. Yfirvöld í Teheran hafa enn ekki gefið út heild­stæða yfir­lýsingu um aðgerðirnar, en búist er við að viðbrögð þeirra muni marka næstu skref í átökunum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár