Níu af hverjum tíu breytingartillögum ungra sjálfstæðismanna hlutu brautargengi

Tillögurnar fólu meðal annars í sér aðskilnað ríkis og kirkju og afnám styrkja til landbúnaðar­kerfisins.

Alls hlutu 89 prósent tillagna ungra sjálfstæðis­manna brautar­gengi í málefna­nefndum á lands­fundi flokksins og munu því verða aðal­tillögur nefndanna þegar kosið verður um þær á morgun. Ungir sjálfstæðis­menn sendu í gær frá sér lista með um 80 breytingar­tillögum á ályktunar­drögum sem málefnda­nefndir flokksins höfðu útbúið í aðdrag­anda lands­fundar, sem nú stendur yfir. Auk þess fjöl­menntu ungliðar á fundinn til að styðja við tillögurnar. Alls var búist við um 300 ungum einstaklingum og að metþátttaka yrðu á meðal ungs fólks.

Í tilkynningu frá sem ungir sjálfstæðis­menn sendu frá sér í gær sagði að fjöldinn endur­speglaði umfang „þeirra breytinga sem ungir sjálfstæðis­menn telja nauðsynlegar til þess að Sjálfstæðis­flokkurinn verði aftur að raunhæfum valkosti fyrir ungt fólk“.

89 prósent tillagna hlutu brautargengi

Tillögurnar sem ungu flokks­mennirnir lögðu fram voru af ýmsum toga. Þeir lögðu til dæmis til að sýslumenn taki alfarið yfir hjóna­vígslur, að Ríkis­útvarpið verði lagt niður, að kosninga­aldur verði lækkaður í 16 ár og að sérstök áhersla verði lög á málefni trans- og intersexfólks. Auk þess kölluðu þeir eftir breyttum áherslum í húsnæðis­málum og telja að framtíðar­lausn í gjaldmiðla­málum felist í öðrum gjald­miðli en krónunni.

Í nýrri tilkynningu, sem send var í dag, greina fulltrúar ungra sjálfstæðis­manna frá því að 89 prósent tillagna þeirra hafi hlotið brautar­gengi í nefndum og munu því verða aðal­tillögur nefndanna fyrir fundinum á morgun.

„Tillögur ungra fólu meðal annars í sér aðskilnað ríkis og kirkju, afnám refsistefnu í fíkniefna­málum og litið verði á fíkn sem heilbrigðismál ekki löggæslu­vanda, lægri kosninga­aldur, bætt skatta­umhverfi fyrir nýsköpunar­fyrirtæki, staðgöngumæðrun, lögfestingu NPA, netfrelsi, að losa land­búnaðinn við fjár­stuðning ríkisins, afnám lágmarks­útsvars, að tekið sé til gagnerrar endur­skoðunar hvernig tekið er á kynferðis­brotamálum og að ekki ætti að leggja almannafé í stóriðju sem ekki skilar arðsemi fyrr en eftir langan tíma. Fjöldi annarra mála ungra sjálfstæðis­manna fóru í gegn.

Þá fengu ungir sjálfstæðis­menn samþykkt ýmsar úrbætur í málefnum hinsegins fólks. Þar má nefna að blóð­gjafar verði metnir á forsendum heilsu­fars óháð kynhneigð, mann­réttindi trans og intersex fólks, jöfn réttindi samkynheigðra foreldra og að ekki yrði talað um konur og karla þar sem það útilokar hið þriðja kyn“.

Sjálfstæðis­flokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi í aðdrag­anda lands­fundar en hann gerir nú, en samkvæmt síðustu könnun er fylgi flokksins 21,4 prósent. Í könnun sem MMR gerði í lok maí komi í ljós að 12,5 prósent fólks á aldrinum 18 til 29 ára studdi flokkinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár