Ný tegund styrkja borin á borð fyrir íslenska kvikmyndagerðarmenn

Fram­leiðendur íslenskra sjón­varps­þáttaraða munu brátt geta sótt um sérstaka loka­fjár­mögnunar­styrki í Kvikmynda­sjóð. Um er að ræða opinbera styrki sem verða endur­heimtir ef framleiðslu­verkefnið gengur vel á erlendum mörkuðum.

Framleiðendur íslenskra sjónvarpsþáttaraða munu senn geta sótt um sérstaka lokafjármögnunarstyrki fyrir verkefni sín.
Fram­leið­endur íslenskra sjón­varps­þáttar­aða munu senn geta sótt um sér­staka loka­fjár­mögn­un­ar­styrki fyrir verk­efni sín. Mynd: Skjáskot/RÚV

Fram­leiðendur íslenskra sjónvarpsþáttaraða munu, ef laga­frumvarp og ný reglugerð frá ráðherra menningar­mála ná fram að ganga, geta sótt um sérstaka framleiðslu­styrki til loka­fjár­mögnunar, sem eiga að geta numið allt að 200 milljónum króna fyrir hverja þáttaröð – en þó að hámarki 25 prósentum af heildar­framleiðslu­kostnaði verk­efnisins.

Þessir styrkir, sem Lilja Alfreðs­dóttir ráðherra kynnir í drögum að breytingum á kvikmynda­lögum og reglugerð um Kvikmynda­sjóð, sem kynnt voru á samráðs­gátt stjórn­valda fyrir helgi, yrðu hrein viðbót við þá framleiðslu­styrki sem Kvikmynda­sjóður veitir nú þegar.

Loka­fjár­mögnunar­styrkirnir eru frábrugðnir framleiðslu­styrkjum sem Kvikmynda­sjóður veitir í dag að því leyti að ef sjóðurinn veitir slíka styrki til verkefna fær sjóðurinn rétt á því hluta þeirra tekna sem sjónvarps­þátta­röðin halar inn á heimsvísu.

Ekki er heimild í lögum fyrir þessu styrkja­fyrir­komulagi í dag og því þarf að breyta kvikmynda­lögunum, svo hin nýja reglugerð um styrkina geti tekið gildi.

Samkvæmt því sem fram kemur í greinar­gerð með frumvarps­drögunum stendur ekki til að hækka framlög til Kvikmynda­sjóðs vegna þessarar nýju tegundar styrkja, en sökum þess að gengið er út frá því að þeir endur­heimtist er þó búist við því að heildar­summan sem Kvikmynda­sjóður geti úthlutað verði stærri en áður.

Einungis fyrir söluvænlegt efni

Sérstakir loka­fjár­mögnunar­styrkir fyrir sjónvarpsþáttaraðir eru bundnir allnokkrum skilyrðum.

Samkvæmt því sem segir í reglugerðar­drögunum verður einungis heimilt að veita þeim til leikinna sjónvarpsþáttaraða „sem höfða til breiðs hóps áhorfenda, eru á íslensku eða hafa aðra íslenska menningar­lega og samfélags­lega skírskotun og stuðla að eflingu íslenskrar kvik­myndagerðar“.

Verkefnin sem styrkt verða eiga auk þess að hafa „mikla markaðs- og dreifingar­möguleika“ og það þarf að vera búið að selja verkefnið til að minnsta kosti tveggja fjölmiðla­veitna á ólíkum markaðs­svæðum.

Styrk­hæfar þáttaraðir þurfa að vera að lágmarki 150 mínútur í sýningu og hver þáttur að lágmarki 25 mínútur að lengd. Að hámarki mega þættirnir þó vera 12 í hverri þáttaröð og 600 mínútur í sýningu í heild sinni. Sjónvarps­myndum má ekki skipta upp í hluta til þess að mæta skilyrðum reglu­gerðarinnar um fjölda þátta.

Samkvæmt drögunum að reglu­gerðinni verður einungis heimilt að styrkja fyrstu og aðra þáttaröð í fram­leiðslu. Þó eru undan­teknir frá þeirri reglu, en ef að endur­heimt styrks sem veittur er vegna þáttaraðar númer tvö er hafin, má Kvikmynda­sjóður styrkja gerð þáttaraðar númer þrjú.

Ætlað að mæta nýjum tímum

Þetta nýja styrkja­fyrir­komulag er í samræmi við fyrir­ætlanir sem fólust í sérstakri kvikmynda­stefnu íslenska ríkisins fram til árið 2030. Í þeirri stefnu, sem kynnt var haustið 2020, sagði að styðja þyrfti við fram­leiðslu, sölu og dreifingu leikinna þáttaraða í anda þess sem gerist hjá Norræna kvikmynda- og sjónvarps­sjóðnum.

Sá sjóður, sem hefur úthluta loka­fjár­mögnunar­styrkjum til margra íslenskra kvikmynda­verkefna á undan­förnum árum, styrkir fram­leiðslu í formi lána sem endur­greiðast samkvæmt reglum sjóðsins.

Í samráðs­gátt stjórn­valda segir að áhersla verði lögð á afgreiðslu umsókna um þessa nýju styrki verði verði hraðað eins og unnt er, og að styrkja­flokknum sé ætlað að „koma til móts við nýja tíma í kvik­myndagerð, sem einkennast af hröðu þróunar- og fjár­mögnunar­ferli verkefna“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár