Umdeildum frambjóðanda sleppt á kjörseðli sjálfstæðismanna: „Martröð frambjóðandans“

Sigríði Andersen alþing­is­konu er brugðið eftir að fram­bjóð­and­ann Sindra Ein­ars­son vant­aði á kjör­seðil hennar, sem fylgdi með Morg­un­blað­inu í dag. Hinir 14 fram­bjóð­end­urnir eru allir á seðl­inum. Uppfært: Nýr lím­miði á morgun

Einn gleymdist
Einn gleymd­ist Sigríður Andersen aug­lýsti 14 fram­bjóð­endur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins á for­síðu Morg­un­blaðs­ins. Sindri Ein­ars­son gleymd­ist.

Á kjör­seðli um próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík sem dreift var með Morg­un­blað­inu í dag var nafni eins fram­bjóð­and­ans, Sindra Ein­ars­sonar, sleppt. Kjör­seð­ill­inn var festur með lím­miða á for­síðu blaðs­ins en þar var ein­ungis að finna 14 fram­bjóð­endur í stað 15. Sindri var ekki tal­inn með. Um er að ræða aug­lýs­ingu frá Sigríði Andersen alþing­is­manni sem hvetur fólk til að kjósa sig í annað sæti. Nafn hennar er afmarkað á seðl­inum og skorað á fólk að kjósa hana.

Kjörseðillinn
Kjör­seð­ill­inn Aðeins 14 fram­bjóð­endur eru nefndir. Einum var sleppt

Sigríði var mjög brugðið þegar Stundin hafði við hana sam­band í morgun. Hún sagð­ist ekk­ert botna í því hvernig þetta hefði getað gerst. Aug­lýs­inga­stofa hefði ann­ast fyrir hana það verk­efni að búa kjör­seð­il­inn til prent­unar.

„Þetta er martröð fram­bjóð­and­ans,“ sagði Sigríður. Hún sagð­ist fara taf­ar­laust í að kanna það hvað hefði farið úrskeiðis og reyna að finna leiðir til að bæta tjónið.

Sindri Ein­ars­son kom af fjöllum þegar Stundin ræddi við hann í morgun. Hann sagð­ist ekki hafa heyrt af umræddri aug­lýs­ingu.

„Ég get ekk­ert tjáð mig um málið,” sagði hann. 

Gleymdist
Gleymd­ist Sindri Ein­ars­son gleymd­ist á kjör­seðli sem dreift var með Morg­un­blað­inu.

Sindri er titl­aður mið­ill í síma­skrá. Á Facebook síðu sinni seg­ist hann hins vegar vera frum­kvöð­ull og við­skipta­jöfur, vel mennt­aður í félags­vís­indum og lögum. [e. I am a entrepreneur a businessman. Well educated in social sciences aswell as law.] Hann segir frá því að hann hafi gengið í skóla FBI National Academy og birtir skír­teini því til sönn­unar á Facebook.

Skírteinið
Skír­teinið sem Sindri birtir á Facebook síðu sinni

Pistill sem Sindri skrif­aði og birt­ist í Morg­un­blað­inu 20. ágúst síð­ast­lið­inn, vakti tölu­verða athygli. Þar seg­ist Sindri meðal ann­ars vilja láta hlera alla múslima, banna fjöl­menn mót­mæli og fá erlenda þjálf­ara til lands­ins, frá banda­rísku FBI alrík­is­lög­regl­unni, sem og MI5 inn­an­rík­is­leyni­þjón­ustu Breta, með það að mark­miði að stofna hér okkar eigin leyni­þjón­ustu. 

 

Uppfært kl. 11:52. Sigríður Andersen hafði sam­band og sagð­ist hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hún yrði að end­ur­birta aug­lýs­ing­una á morgun. Þá mun koma nýr lím­miði með öllum 15 fram­bjóð­end­unum. Í ljós hafi komið að það voru mis­tök aug­lýs­inga­stofu að sleppa Sindra. 

„Ég er búin að hafa sam­band við Sindra og biðja hann afsök­unar. Nið­ur­staða mín var sú að þetta mætti ekki standa svona. Það verður því ný aug­lýs­ing með Morg­un­blað­inu á morgun,“ segir Sigríður. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár