Ófullburða arfur – ljúf, fyndin og frábær leiklist

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Engilinn eftir Þorvald Þorsteinsson.

Þjóðleikhúsið: Engillinn. Leiksýning byggð á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar

Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson

Leik­stjórn, handrit og leikmynd: Finnur Arnar Arnarson

Dramatúrg: Gréta Kristín Ómars­dóttir

Búningar: Þórunn María Jóns­dóttir

Lýsing: Ólafur Ágúst Stef­ánsson

Tónlist: Pétur Ben og Elvar Geir Sævarsson

Hljóðmynd: Kristján Sigmundur Einarsson og Elvar Geir Sævarsson

Leikarar: Arndís Hrönn Egils­dóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Eggert Þorleifsson, Guðrún S. Gísla­dóttir, Ilmur Kristjáns­dóttir

Þorvaldur Þorsteinsson (1960-2013) var augljós­lega óvenju­lega fjölhæfur lista­maður sem lagði gjörva hönd á margt á stuttri ævi. Hann féll frá rúmlega fimmtugur og hafði þá þegar náð að halda yfir 40 einka­sýningar sem myndlistar­maður og taka þátt í tugum alþjóðlegra myndlistar­viðburða og hlaut á þeim ferli viðurkenningar og alþjóðleg verðlaun fyrir framlag sitt til samtíma­myndlistar. En hann var ekki síður afkasta­mikill rithöfundur og skrifaði fjölda leikverka fyrir svið, en þar munu þekktust vera Skilaboða­skjóðan, sem frumflutt var 1993 og sett upp aftur 2007 auk þess sem áhuga­félög hafa tekið Skjóðuna til meðferðar, Leitin að jólunum sem er árviss viðburður í Þjóð­leikhúsinu fyrir jól og And Björk, Of Course sem frumflutt var 2002 hjá Leik­félagi Reykja­víkur; en að auki skrifaði Þorvaldur fyrir sjónvarp og hljóðvarp, m.a. örleikrit og eins varð hann þekktur fyrir Vasa­leikrit sín, sem flutt voru vikulega í Ríkis­útvarpinu veturinn 1991-92. Hann eftir sig fjölda leikverka í fullri lengd auk handrita fyrir bæði sjónvarp og útvarp.

Það er úr þessum arfi sem myndlistar­maðurinn og leikmynda­hönnuðurinn Finnur Arnar Arnarson hefur sett saman sýningu til að heiðra minningu Þorvaldar og vekja athygli á þeim arfi sem hann lætur eftir sig. Þetta er í fyrsta skipti sem Finnur Arnar tekur að sér að semja handrit og leikstýra í leikhúsi en hann er þó á heima­velli enda þekktur og marg­rómaður hönnuður leikmynda. Skemmst frá að segja tekst þessi frumraun hans í handrits­gerð og leik­stjórn ákaflega vel og full ástæða til að hvetja hann til frekari dáða á þeim vettvangi. Það er líka ákveðin áskorun fyrir leikhús landsins að sækja innspýtingu og innblástur úr öðrum áttum en eingöngu eigin ranni eða eigin hópi – í besta falli verður árangurinn eins og hér er, því Engillinn er áleitið, ferskt, áhrifa­mikið leikhús, það er hrífandi og – það sem kannski mestu skiptir – barma­fullt af trú á lífið.

Finnur Arnar raðar saman brotum úr höfundar­verki Þorvaldar og hirðir ekki um línulega eða rökræna frásögn. Það er vaðið úr einu í annað á ákaflega absúrd máta – sem er fullkomlega í stíl við leik- og myndverk Þorvaldar; hann er öðrum þræði fulltrúi absúrdismans og má greina áhrif frá til dæmis Ionesco í samtölum persóna hans. En Þorvaldur fer eigin leiðir og þar sem absúrdistar milli­stríðsára Evrópu sátu fastir og komust ekki úr vonleysi sínu yfir tilvist mannsins er Þorvaldur fremur að henda góðlátlegt og elskulegt gaman að því hvernig við mann­fólkið erum njörvuð í félagsleg hlutverk okkar – hann skoðar sérstak­lega og beinir spjótum að hvernig búningar fara með fólk – reyk­kafarar, lögregla, flug­freyja eru „búningar“ sem koma fyrir í verkum hans – en hann er ekki síður hugfanginn af „ósýnilegu búningunum“ og hvernig við reynum stöðugt að öðlast sess í samfélagi manna í að því er virðist innihalds­lausum, jafnvel merkingar­lausum samræðum.

En í öllum slíkum samræðum felst ákveðinn ótti við að heyra hvergi til, eiga hvergi heima, og það er kannski umfram allt sá ótti sem er viðfangs­efni Þorvaldar. Og hann tekur á þessum sammannlega ótta af næmni og væntumþykju og það er eins og í öllum hans samræðum megi finna undir­liggjandi stað­hæfingu: Ekki gefast upp, það er von, allt mun verða betra og þolanlegra, bara ef maðurinn þolir við, gefst ekki upp. Það er jákvæður boðskapur, fram settur af þeirri hógværð sem absúrdisminn, fárán­leikinn, á satt að segja til á sínum bestu stundum.

Þessi hugljúfi boðskapur er fram borinn í hinum mismun­andi atriðum sýningarinnar sem tengjast vel saman í leikmynd, lýsingu og tónlist og hljóðmynd allri. Og ekki síður leik! Það er langt síðan sást jafn vel slípaður samleikur og hér er og þarf ekki að fara mörgum orðum um frammistöðu leik­hópsins – hér er valin kona og valinn maður í hverju rúmi og það er einfald­lega unun að því að horfa á hversu leik­gleðin og kátínan ræður ríkjum, leik­stíllinn frjáls­legur í samræmi við efnið en allt vel agað og njörvað niður í heimsmynd Þorvaldar – og ekki verður betur séð en leik­hópurinn, allur sem einn, samsami sig þeirri heimsmynd og finni sig vel heima í henni. Enda verður ekki annað túlkað af efninu en Þorvaldur hafi verið húmanisti og mannvinur af besta tagi og um leið ákaflega góður húmoristi með næmt auga fyrir hjákátlegum atvikum tilverunnar. Öllu þessu kemur leik­hópurinn til skila í frábærum samleik.

Það má vekja sérstaka athygli á því að allir þeir munir, sem finna má á sviðinu og heyra til leikmynd og leikmunum eru til sölu – áhorf­endur geta keypt þá að lokinni sýningu og fengið þá afhenta að sýningar­tímabili loknu. Þá er ekki síður gaman að því að í hléi er kökubasar – valið kvenfélag mætir með heima­bakað og það er sömuleiðis til sölu ef áhorf­endur vilja taka með sér köku heim til að maula meðan sýningin meltist og sest í sálina. Þessir gjörningar – og reyndar fleiri – vísa til verka Þorvaldar jafnt í leik­listinni sem í mynd­listinni og verða því hluti af því „hommage“ til Þorvaldar sem Engillinn er og er vel við hæfi.

Sem fyrr segir lést Þorvaldur Þorsteinsson langt fyrir aldur fram, rétt rúmlega fimmtugur að aldri. Textar hans bera með sér að hann hefði örugglega náð mun lengra og þroskast sem leikskáld og lista­maður, hefði honum enst aldur til. Að því leyti til er arfur hans ófull­burða og við munum aldrei fá að sjá hvaða hæðum list hans hefði hugsanlega getað náð. Megi það verða okkur áskorun að hefja fána hans á loft í barátt­unni óendanlegu fyrir betra lífi og skemmtilegra! Þá er til einhvers unnið!

Engillinn er með því besta sem sjá má á fjölum leik­húsanna um þessar mundir – ekki missa af þessari frábæru og fallegu sýningu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár