Tveir forsetar – fimmtíu ár

Fyrir hálfri öld loguðu líka eldar á götum í Banda­ríkjunum. Ástandið núna er að sumu leyti mun hættulegra.

Margir vilja bera saman núverandi átök í borgum Banda­ríkjanna og þau sem áttu sér stað fyrir hálfri öld eða svo. Er það skynsamlegt eða gagnlegt? Bæði og. Því að þráðurinn á milli er óslitinn. Og púðrið í tunnunni meira. En sagan er flókin.

Hið flókna réttlæti

Á sjöunda áratug síðustu aldar var gerð tilraun til þjóðfélags­byltingar í Banda­ríkjunum. Henni lauk samt aldrei og því standa átökin enn. Að sumu leyti harkalegri en áður.

Í byltingunni fólst að tryggja skyldi fólki frelsi og réttindi, sem það hafði ekki notið áður.

Mikil­vægust voru réttindi blökku­manna, sem höfðu þó að nafninu til verið frelsaðir úr ánauð tæpri öld áður eftir ótrúlega blóðuga borgara­styrjöld.

Í suður­ríkjunum, þar sem efnahags­lífið hafði byggzt á þræla­haldi, fengu hinir nýfrjálsu fangar samt fá réttindi í reynd, þótt lög segðu annað. Langt fram eftir tuttugustu öld var þeim til dæmis meinað að kjósa, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár