Bæjarstjóri leggur til að lækka laun kjörinna fulltrúa í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópa­vogs­bæjar, lagði til við bæj­ar­stjórn­ina að laun kjör­inna full­trúa, þar með talið bæj­ar­stjóra Kópavogs, yrðu lækkuð um 15 pró­sent.

Kópavogur
Kópa­vogur

Ármann Kr. Ólafsson bæj­ar­stjóri Kópa­vogs­bæjar lagði til við bæj­ar­stjórn í gær að laun kjör­inna full­trúa, þar með talið bæj­ar­stjóra Kópavogs, yrðu lækkuð um 15 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bæj­ar­stjór­anum. Til­lög­unni var vísað til for­sætis­nefndar með öllum greiddum atkvæðum.

„Launa­þróun kjör­inna full­trúa hefur sætt gagn­rýni und­an­farnar vikur og mán­uði eða allt frá úrskurði kjara­ráðs í lok árs 2016. Ég tel rétt að bregð­ast við þeirri gagn­rýni með launa­lækkun og lagði til við bæj­ar­stjórn Kópavogs að laun kjör­inna full­trúa, þar með talið bæj­ar­stjóra Kópavogs, yrðu lækkuð um 15%,“ segir hann.

Tillagan hljómar á þá leið að bæj­ar­stjórn Kópavogs sam­þykki að lækka laun kjör­inna full­trúa og laun bæj­ar­stjóra um 15% við upp­haf nýs kjör­tíma­bils. 

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að í kjöl­far úrskurðar kjara­ráðs um kjör þing­manna hafi bæj­ar­stjórn Kópavogs sam­þykkt á nýliðnu kjör­tíma­bili að hækka laun kjör­inna full­trúa og bæj­ar­stjóra hjá Kópa­vogsbæ.

„Hækkunin tók þó ekki mið af úrskurði kjara­ráðs heldur var hækk­unin lægri en þar var kveðið á um og tók þess í stað mið af þróun launa­vísi­tölu á vinnu­mark­aði. Engu að síður hefur komið fram gagn­rýni á launa­þróun þess­ara aðila sem og kjör ann­arra kjör­inna full­trúa í land­inu m.a. af hálfu for­ystu­fólks á vinnu­mark­aði. Því er lagt til að launin lækki í upp­hafi kjör­tíma­bils um 15% frá því sem þau eru nú," segir í grein­ar­gerð­inni.

Margrét Frið­riks­dóttir lagði til að til­lögu Ármanns Kr. Ólafs­sonar verði vísað til úrvinnslu for­sætis­nefndar. Var það sam­þykkt með 11 atkvæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár