Ný skýrsla sýnir að það „hallar verulega á karla“ í háskólamenntun

Munurinn eykst á fjölda ungra kvenna og karla sem eru með háskóla­próf. 57 prósent íslenskra kvenna á aldrinum 25 til 34 ára hafa lokið háskóla­námi, en aðeins 39 prósent karla. Menntunar­staða karla er verri hér en víðast hvar í Evrópu.

Staða karlmanna á Íslandi út frá menntun er verri en víðast hvar í Evrópu, samkvæmt skýrslu OECD um stöðu menntunar í álfunni. Kynja­munur á Íslandi er konum í hag í mennta­kerfinu, en körlum í hag í atvinnu­lífinu, samkvæmt megin­ályktunum skýrslunnar, Education at a Glance, sem kemur út í dag.

Af löndum Evrópu sem eru þátt­takendur í OECD eru fá dæmi um að karlmenn á aldrinum 25 til 34 ára hafi minni menntun. Um 24 prósent íslenskra karlmanna á þessum aldri hafa aðeins lokið grunn­skólanámi. Mun færri konur, eða 15 prósent, eru í sömu stöðu. „Staða karla er aðeins verri á Ítalíu, Spáni og Portúgal af löndum Evrópu sem eiga aðild að OECD mennta­tölfræðinni,“ segir í samantekt Mennta- og menningar­mála­ráðuneytisins um skýrsluna. „Um 24% karla á þessum aldri hafa ekki lokið námi eftir grunn­skóla en hlut­fallið er 15% fyrir konur. Munurinn milli kynjanna er óvíða jafn mikill og á Íslandi eða 9 prósentu­stig og að því leyti svipar Ísland einnig til landa í sunnan­verðri álfunni.“

„Munurinn milli kynjanna er óvíða jafn mikill og á Íslandi“

Munurinn milli kynjanna hefur aukist undan­farinn áratug, þótt þeim fari almennt tölfræði­lega fækkandi sem aðeins hafa grunn­skólapróf. Á einum áratug hefur fækkaði í þessum hópi, sem aðeins hefur grunn­skólapróf, um 7 prósentu­stig hjá körlum, en um 13 prósentu­stig hjá konum.

Þessi níu prósenta­stiga munur á kynjunum er meiri en annars staðar á Norður­löndunum. Í Danmörku er munur kynjanna 7 prósent, en í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er hann aðeins þrjú til fjögur prósent.

Mun líklegra er að konur en karlar hefji háskólanám. „Það má því segja að líkurnar á því að kona hefji háskólanám sé 1,5 í saman­burði við karla eða að karlar séu 0,6 sinnum líklegir til að hefja háskólanám miðað við konur. Samsvar­andi líkur fyrir karla er 0,8 að meðaltali innan OECD og er ekki lægra en 0,7 á hinum Norður­löndunum. Líkurnar eru aðeins lægri í Ísrael,“ segir í samantekt ráðuneytisins.

Þróunin hefur verið á þá leið að kynja­munur háskóla­menntunar á Íslandi eykst. Í fyrra voru 39 prósent karlmanna á aldrinum 25 til 34 ára með háskóla­próf, en voru 29 prósent 2007. Mun fleiri konur, eða 57 prósent, hafa háskóla­gráðu á þessum aldri, en voru 37 prósent fyrir áratug.

„Það er því talsverður munur á menntunar­stigi fólks í þessum aldurs­hópi eftir kyni og hallar verulega á karla þar sem 18 prósentu­stigum munar á kynjunum konum í vil,“ segir í saman­tektinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár