Krínólín, kjólar og ómældur kvennakraftur!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Konur & krínólin eftir Eddu Björgvins­dóttur.

Leikhúslistakonur 50+ í samstarfið við Þjóðleikhúsið: Konur & krínólín

Handrit: Edda Björgvins­dóttir

Leik­stjórnar­teymi: Edda Björgvins, Kolbrún Halldórs­dóttir og Edda Þórarins­dóttir

Svið: Elín Edda Árna­dóttir

Búningar og útlit: Helga Björnsson

Hárgreiðsla: Guðrún Þorvarðar­dóttir

Sviðs­hreyfingar: Ásdís Magnúsdóttir

Ljósa­hönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson

Leikkonur: Bryndís Petra Braga­dóttir, Edda Björgvins, Guðbjörg Thoroddsen, Júlía Hannam, Kolbrún Halldórs­dóttir, Lilja Þóris­dóttir, Ólöf Sverris­dóttir, Rósa Guðný Þórs­dóttir, Salvör Aradóttir, Vilborg Halldórs­dóttir.

Ekki verður annað sagt en sýning Leikhús­listakvenna 50+, Konur og krínólín sé áferðar­fallegt augnayndi. Hér birtast eins og á færibandi alls konar sköpunar­verk kjóla frá ýmsum tímum sögu kven­fatatískunnar og bornir af glæsi­legum konum sem augljós­lega njóta þess að bera þá og segja sögu þeirra.

Öðru fremur má nefnilega segja að Konur og krínólín segi sögu kven­fatatískunnar – sem hefur nú ekki alltaf haft að útgangs­punkti að gera lífið bærilegt konum eða þægilegt. Í sýningunni Konur & krínólín birtast alls konar tilkomu­miklar „kreasjónir“, yfir­ferðin hefst á krínólínum, sem urðu aðal­kven­fatatískan á seinni hluta 19. aldar og sem hefði í raun verið gaman að heyra meira um – fyrst þegar í upphafs­orðum sýningarinnar var m.a. minnst á þetta, að kven­fatatískan hefði aldeilis ekki verið til að auka konum þægindin.

Það hefði að ósekju mátt fara lengra inn á þá braut; konum voru krínólínurnar beinlínis lífs­hættulegar; þær voru gerðar úr taglhári, fléttuðum með líni og gríðar­lega eldfimar. Það er talið að mörg þúsund konur hafi orðið eldi að bráð þar sem þær stóðu í eldhúsinu og dúllur og tau í krínólínunum kom of nálægt elda­vélinni og konurnar breyttust í kyndla, sem fuðruðu upp enda bæði tagl, lín og kjólefnið eldfimt með afbrigðum. Þá eru til frásagnir af konum sem unnu í verksmiðjum þeirra tíma – seinni hluta 19. aldar, byrjun þeirrar 20. – sem urðu fyrir því að krínólínurnar festust í vélunum, drógu varnar­lausar konurnar inn í reimar og spil þar konurnar mörðust eða heinlega kubbuðust sundur. Og ekki var vinnustaða­eftirliti til að heilsa; karlarnir létu sér nægja að benda á að sannur sjentilmaður viki úr vegi og stigi út á götu þegar konur í krínólínum yrðu helstil fyrir­ferðamiklar á gangstéttinni.

En Konur & krínólín er auðvitað fyrst og fremst til gamans gert og stendur fyllilega undir því. Enda má til sanns vegar færa að krínólín urðu ekki sá vandi hér á landi eins og í iðnaðar- og borgar­samfélögum Evrópu og Banda­ríkjanna. Hér urðu þær fyrst og fremst skemmtilegt tákn útlendrar borgaratísku og líklegast að íslenskri alþýðu hafi þótt fyndið að sjá danskar kaupmanns­frúr tipla til kirkju á sunnu­dögum í slíkri múnderingu yfir drullugan Austur­völlinn.

Konur & krínólín dregur þeim mun skemmtilegri mynd af því þegar við Íslendingar komumst í tæri við hina og þessa tískuna á 20. öldinni – charlestonið, samkvæmis­kjólar, fatnaður sem ýmist leggur áherslu á grannan vöxt og kynþokka eða líkt og gerðist á seinni hluta aldarinnar, þegar fatnaðurinn leggur áherslu á frelsi og sjálf­stæði konunnar.

Öllu þessu og meira til bregður fyrir í stuttum atriðum sem aukinheldur vekja upp anda hvers tíma, annað hvort með látbragði eingöngu eða einnig í stuttum samtölum, hnyttnum og hnit­miðuðum. Það leið ekki á löngu þar til vonlaust var að telja þann fjölda kjóla og klæðnaða sem birtust og hurfu, enda hefur tískan á seinni árum tekið örum og skjótum breytingum og þarf augljós­lega meira en meðalkonu til að henda reiður á svipti­vindum tískunnar. Og svo því sé til haga haldið – tísku­straumarnir komu á köflum róti á fulltrúa feðra­veldisins, sem birtast hér af og til, íhalds­samir karl­pungar sem hafa auðvitað skoðanir á því þegar konurnar virðast ætla að gerast helstil sjálf­stæðar. Góð áminning um að saga tískunnar og saga kven­réttinda fer ávallt saman og að enn er heilmargt starf óunnið þegar kemur að því að konur séu jafn­réttháar körlum í öllu tilliti, ekki síst menningar­lega!

Sú sem ber ábyrgð á öllum þeim búningum sem bregður fyrir í Konur & krínólín er Helga Björnsson og nafn hennar ætti að vera flestum kunnugt. Helga hefur um árabil starfað í tísku­heimi Evrópu og hefur getið sér gott orð sem hönnuður; hún var búsett í Bretlandi og Frakk­landi frá þrettán ára aldri, lauk námi í fata­hönnun Les Arts Decoratives í París og starfaði um árabil sem aðal­hönnuður við Haute Couture í tískuhúsi Louis Feraud í París. Helga hefur einnig hannað búninga fyrir bæði Þjóð­leikhúsið og Íslensku Óperuna og vann til Grímu­verðlauna fyrir búninga sína í Íslands­klukkunni.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hvílík fagmennska liggur að baki búningunum – hér er nostrað við hvert smáatriði af þekkingu á sögu hvers búnings og því tímabili sem umlukti stíl og stemningu. Búningarnir eru flugeldasprengin í munstrum og litum og sú tilfinning er vitaskuld efld með viðeigandi tónlist. Þetta er „mikið sjó“ og þá hefur ekki enn verið minnst á hin öru búninga­skipti sem ganga að því er best verður séð snurðu­laust fyrir sig. Og ekki má gleyma sviðs­hreyfingum, sem Ásdís Magnúsdóttir hefur stýrt af öryggi og með næmu auga fyrir hreyfingum hvers einstaks tímabils – og ekki lítið afrek það! Ásdís nam listdans í List­dansskóla Þjóð­leikhússins og eftir það í New York og starfaði svo í tæpa tvo áratugi með Íslenska dans­flokknum og dansaði með honum nokkur helstu aðal­hlutverk í þekktustu dans­verkum heimsins.

Það væri að æra óstöðugan að fjalla sérstak­lega um hverja og eina leikkonu sem hér kemur fram, hver og ein í fjölda hlutverka og sýnir þar með fjöl­breytileik í sviðs­framkomu og tjáningu. Þó verður ekki hjá komist að nefna hlut sögu­konunnar sem heldur utanum allan gjörninginn og tengir atriðin saman og þau við hin mismun­andi tímabil. Edda Björgvins fer hér á kostum og nær frá fyrsta andartaki tökum á áhorf­endum og fleytir gjörn­ingnum áleiðis með bæði fróðleik og húmor. Hún sannar hér – og var þó búin að því svo ekki yrði í efa dregið – að hún er, að öðrum gaman­leikkonum ólöstuðum, albesta komedienne íslenskrar leik­listar. En þó má geta þess, að flestar þær leikkonur sem hér stíga fram, dansa og tjá mismun­andi tímabil tísku­strauma, eru flottar gaman­leikkonur líka, ef því er að skipta. Takið bara eftir spili augna og augngotum, léttum höfuð­hnykkjum og kersknis­legu yfir­bragði í samskiptum við áhorf­endur. Það þarf ekki að draga í efa að leikhús­listakonur 50+ búa ekki einasta yfir ríkum hæfi­leikum (sem leikhúsin mega vel nýta mun betur en gert er!!!) heldur kunna þær að miðla taum­lausum þokka, fegurð, töfrum og glæsibrag – og hinu líka þegar þess er þörf!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár