Einhver sprelligosi notfærði sér um helgina hliðarsjálf huldumannsins Ólafs Jóns Sívertsen sem skrifaður er fyrir pistlum um þjóðfélagsmál á vefsvæði fjölmiðilsins Hringbrautar. Pistlahöfundurin Ólafur Jón Sívertsen er ekki til sem sá tiltekni maður heldur skrifar einhver ónafngreindur einstaklingur pistla undir hans nafni á vefsvæði Hringbrautar segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri Hringbrautar og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar. Þetta hliðarsjálf huldumannsins, sem Sigmundur Ernir vill ekki gefa upp hvað heitir, má kalla Ólaf Jón Sívertsen I.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir