Dagurinn í dag er „Leif Erikson Day“ í Bandaríkjunum

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, sendi árlega kveðju sína til heims­byggðarinnar í tilefni af degi Leifs Eiríks­sonar út í gær. Dagurinn er haldinn hátíð­legur í Banda­ríkjunum í dag, 9. október, til að heiðra arfleið Banda­ríkjanna og minningu þeirra Norrænu manna sem námu land í Norður-Ameríku fyrir rúmlega þúsund árum síðan.

Leifur, sem fékk síðar viðurnefnið „hinn heppni“ eftir að hafa bjargað skipsbrots­mönnum af skeri, var íslenskur land­könnuður sem talin er hafa komið fyrstur Evrópubúa til Norður-Ameríku í kringum árið 1000, tæpum fimm hundruð árum áður en Kristófer Kólumbus nam land í nýja heiminum.

Í yfir­lýsingu Obama kemur fram að þegar Leifur, sonur Íslands og barnabarn Noregs, hafi farið frá sínum Norrænu heim­kynnum og siglt vestur þegar þorri heimsins var óþekktur. Því sé tilefni til að viðurkenna hugrekki og áræðni þeirra sem lögðu í þann könnunar­leiðangur í leit að nýjum tækifærum.

Yfir­lýsing Barack Obama frá því í gær í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár