Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað

Ágúst Bjarni Garð­ars­son hefur keypt bæj­ar­blaðið Fjarð­ar­fréttir í gegnum ráð­gjafa­fyr­ir­tæki sitt, Vissa ráð­gjöf. Félagið komst í fréttir fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar vegna starfa sinna fyrir þáver­andi bæj­ar­stjóra.

Eigandi
Eigandi Ágúst Bjarni er nýr eig­andi Fjarð­ar­frétta.

Ágúst Bjarni Garð­ars­son hefur keypt hið rót­gróna hafn­firska bæj­ar­blað, Fjarð­ar­fréttir. Þetta kemur fram á vef mið­ils­ins,  fjardar­frettir.is. Guðni Gíslason hefur verið eig­andi og rit­stjóri blaðs­ins um ára­bil. Samkvæmt grein­inni er það ráð­gjafa­fyr­ir­tæki Ágústs Bjarna, Vissa ehf., sem kaupir blaðið.

Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið komst í frétt­irnar fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, en flokks­bróðir Ágústs og þáver­andi bæj­ar­stjóri, Valdimar Víðisson, var gagn­rýndur fyrir að kaupa þjón­ustu af ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu sem nú hefur fest kaup á Fjarð­ar­fréttum.

Það er félag Guðna, Hönn­un­ar­hús ehf., sem selur en ekk­ert kaup­verð er að finna í grein Fjarða­frétta um eigin sölu. Guðni er Hafn­firð­ingum vel kunn­ugur enda rak hann lengi bæj­ar­blaðið Fjarð­ar­póst­inn en hann hefur síð­ustu tíu ár stýrt Fjarð­ar­fréttum.

Ráðlagði bæjarstjóra 

Heim­ildin greindi frá því fyrr í sumar að ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Vissa hefði átt gott rekstr­arár á síð­asta ári sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins. Þá velti félagið 40 millj­ónum króna og skil­aði 16 millj­ónum í hagnað.

…

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár