Baráttan um flugfarþegana á Kastrup harðnar svo um munar

Það eru sann­kallaðir gósentímar framundan hjá þeim sem hyggjast ferðast fljúgandi til og frá Kaupmanna­höfn. Að minnsta kosti ef marka má yfir­lýsingar flug­félaga sem berjast um farþegana og bjóða fargjöld á sann­kölluðum spottprís. Írska lággjalda­félagið Ryan air ætlar að hefja áætlunar­flug frá Kastrup í næsta mánuði, SAS hyggst á næstu vikum stofna nýtt lággjalda­félag og ætlar sér stóra sneið af „farþegakökunn,“ og Norwegian flug­félagið ætlar ekki að sitja aðgerða­laust hjá og hyggst bæta við nýjum flug­leiðum, meðal annars til Hawai og Suður-Afríku.

Það hafa ekki verið gósentímar í flug­rekstrinum að undan­förnu, að minnsta kosti ekki hjá stóru norrænu flug­félögunum tveimur, SAS og Norwegian. SAS hefur um árabil átt í miklum rekstrar­erfiðleikum og þrátt fyrir að fjölda­uppsagnir og lækkun launa hjá starfs­fólkinu hefur ekki tekist að koma rekstrinum í viðunandi horf. Fyrir nokkrum mánuðum munaði „engu“ að félagið færi í þrot en á síðustu stundu tókst að koma í veg fyrir að svo færi. Danskur banka­sérfræðingur sagði þá að SAS dinglaði enn í snörunni þótt lengt hefði verið í henni. Eitthvað róttækt yrði að koma til ef SAS ætti að lifa.

Red 1


Fyrir nokkrum dögum greindi DR, danska útvarpið, frá því að SAS hefði sent til­kynn­ingu til sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins þar sem fram kæmi að félagið hygð­ist stofna nýtt flug­fé­lag, Red 1. Jafn­framt yrði Cimber flug­fé­lagið, sem SAS keypti í des­em­ber í fyrra lagt niður sem slíkt en yrði þó áfram til sem eins konar und­ir­fé­lag SAS. Cimber á ein­ungis fimm flug­vélar en stjórn­endur SAS ætla að færa að 12 –15 litlar vélar, 50 til 70 sæta, úr flug­flota SAS yfir í nýja félagið Red 1 en SAS á sam­tals 140 vélar og er stærsta flug­fé­lag á Norð­ur­löndum.

Red 1 verður lággjalda­félag og SAS ætlar nú fyrir alvöru að blanda sér í þann slag. Um 300 starfs­menn SAS færast yfir til nýja félagsins, það fólk verður ráðið upp á lakari kjör (lægri laun, lengri vinnutími, styttra orlof og svo framvegis) og þannig dregið úr rekstrar­kostnaði. Þetta eru í stuttu máli þær aðgerðir sem stjórn­endur SAS grípa nú til í því skyni að styrkja rekstur félagsins en jafnframt er ætlunin að endurnýja flug­flotann í áföngum, ekki síst með það fyrir augum að draga úr eldsneytis­kostnaði. Hvort þetta dugir leiðir tíminn í ljós en fyrir starfs­fólkið, um það bil 13 þúsund manns, er mikið í húfi.


Flugvél SAS á Kastrup flugvelli. Rekstur flug­félagsins hefur verið á brauð­fótum undan­farin ár, en nú hyggst félagið sækja fram með nýju lággjalda­flugfélagi sem hyggst blanda sér af krafti í slaginn um flug­farþegana.

Norska flugævintýrið


Flug­vélar Norwegian hafa um margra ára skeið flogið vængjum þöndum (og með sperrt stél) og félagið hefur sífellt orðið stærra og umsvifa­meira á evr­ópskum flug­mark­aði. Margir hafa spurt sig hvernig á því standi að þetta flug­fé­lag, sem var stofnað 1993 og sinnti þá ein­göngu inn­an­lands­flugi í Noregi, hafi náð að gera sig svo gild­andi í flug­rekstri sem raun ber vitni. Þessu er ekki auð­velt að svara.

Flugvél SAS á Kastrup flugvelli. Rekstur flugfélagsins hefur verið á brauðfótum undanfarin ár, en nú hyggst félagið sækja fram með nýju lággjaldaflugfélagi sem hyggst blanda sér af krafti í slaginn um flugfarþegana.
Flugvél SAS á Kastrup flug­velli. Rekstur flug­fé­lags­ins hefur verið á brauð­fótum und­an­farin ár, en nú hyggst félagið sækja fram með nýju lággjalda­flug­fé­lagi sem hyggst blanda sér af krafti í slag­inn um flug­far­þeg­ana.

Danskur flug­rekstrar­sérfræðingur sagði í viðtali nýlega að Norwegian hefði einhvernveginn hitt á óskastund, ef hægt væri að tala um slíkt í flug­rekstri, og stjórn­endur þess nánast aldrei stigið feilspor í ákvörðunum. Árangurinn ber þess líka vitni, félagið ræður nú yfir um það bil 100 flugvélum, flýgur til 129 áfanga­staða og flutti 24 milljónir farþega á síðasta ári. En, það á ekki að láta staðar numið; árið 2012 pantaði Norwegian 222 nýjar flugvélar, Boeing og Airbus, sem verða afhentar á næstu árum. Þetta er stærsti flugvéla­kaup­samningur sem gerður hefur verið í Evrópu og þegar frá honum var greint sá forstjóri Norwegian ástæðu til að geta þess, þegar hann nefndi töluna 222, að hann stamaði ekki.

Svo kom 2014


En allt er í líf­inu hverf­ult. Um mitt síð­asta ár var greint frá því í fréttum að mikið tap hefði orðið á rekstri félags­ins frá árs­byrjun 2014 eftir sjö góð ár. Það reynd­ust orð að sönnu því þegar reikn­ingar lið­ins árs lágu fyrir kom í ljós að Norwegian hafði tapað um það bil 1,4 millj­örðum norskra króna (rúmum 24 millj­örðum íslenskum). Þótt veltan sé mikil tekur slíkt tap óneit­an­lega í.

Ástæðurnar fyrir þessum viðsnúningi eru meðal annars lágt gengi norsku krónunnar, óhag­stæðir eldsneytis­samningar og verkföll starfs­fólks. Bjørn Kjos framkvæmda­stjóri og aðal­eigandi félagsins sagði í viðtali að þótt tap væri aldrei viðunandi í viðskiptum, frekar en mótvindur í flugi, væri hann eigi að síður bjartsýnn og Norwegian ætlaði sér stóra hluti á næstu árum, ekki síst á lengri flug­leiðum. Félagið yrði áfram í fremstu röð. Hann sagði jafnframt að Osló, Stokk­hólmur og Kaupmanna­höfn yrðu áfram lykil­staðir í starfseminni.

Ryanair


Fyrir nokkrum mán­uðum til­kynntu stjórn­endur Ryanair að félagið myndi hefja áætl­un­ar­flug frá Kaup­manna­höfn 26. mars á þessu ári og félagið myndi jafn­framt koma upp bæki­stöð á Kastrup. Þessar fréttir vöktu mikla athygli og ekki voru allir jafn upp­rifnir yfir tíð­ind­unum, væg­ast sagt.

Írska lággjalda­flugfélagið Ryanair hafa boðað komu sína á Kastrup og ætlar að storma inn á markaðinn með látum.

Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hafa boðað komu sína á Kastrup og ætlar að storma inn á markaðinn með látum.
Írska lággjalda­flug­fé­lagið Ryanair hafa boðað komu sína á Kastrup og ætlar að storma inn á mark­að­inn með látum.

Ryanair er þekkt fyrir að fara sínu fram og hefur oft lent í hörðum deilum, ekki síst vegna kjaramála. Stjórnendurnir hafa iðulega verið sakaðir um mikla óbilgirni og að félagið í krafti stærðar sinnar komist upp með ýmislegt sem önnur félög gætu aldrei látið sig dreyma um. Almenningur hefur hins vegar kært sig kollóttan um slíkt tal en hins vegar kunnað vel að meta lágt miðaverð, sem hefur verið aðall félagsins.

Hart móti hörðu


Dönsku laun­þega­sam­tökin sögðu þegar þessar fréttir um fyr­ir­hugað flug frá Kastrup bár­ust, að ekk­ert væri nema gott um það að segja en for­svars­menn Ryanair skyldu gera sér grein fyrir að hér væri borgað, og unnið, sam­kvæmt dönskum kjara­samn­ingum en ekki írskum eins og Ryanair vill ætíð gera. Ryanair seg­ist aftur á móti vera írskt félag sem borgi eftir írskum samn­ingum.

Félagið hótar lögsókn ef Danirnir vilja ekki fallast á þessi rök og dönsku launþegarnir hafa sömuleiðis boðað lögsókn á hendur Ryanair. Forsvars­menn félagsins vita að dönsku launþega­samtökin eru ekki lömb að leika sér við og geta auðveldlega lamað alla starfsemi Íranna ef svo ber undir.

Michael O'Leary, hinn litríki forstjóri Ryanair, býr sig undir átök við dönsku verkalýðs­félögin.

Ætla í loftið 18. mars


Á frétta­manna­fundi í Kaup­manna­höfn fyrir nokkrum dögum sagði einn stjórn­enda Ryanair að ef komið yrði í veg fyrir að félagið gæti komið upp bæki­stöð á Kastrup þýddi það auð­vitað færri störf en félagið myndi eigi að síður halda sínu striki og hefja áætl­un­ar­flug til átta staða 18. mars, þ.e. átta dögum fyrr en fyrst var gert ráð fyrir. Þessir staðir eru: Dublin, London, Brussel, Madrid, Milanó, Róm, Stokk­hólmur og Varsjá.

Michael O'Leary, hinn litríki forstjóri Ryanair, býr sig undir átök við dönsku verkalýðsfélögin.
Michael O'Leary, hinn lit­ríki for­stjóri Ryanair, býr sig undir átök við dönsku verka­lýðs­fé­lögin.

Stjórn­endur Ryanair hafa lýst sig fúsa að hitta talsmenn launþega­samtaka á Kastrup. Þetta er talið merki um að þeir átti sig á að Danirnir muni ekki gefa þumlung eftir, því fram til þessa hefur Ryanair aldrei svo mikið sem yrt á talsmenn launþega­samtaka í þeim löndum sem félagið flýgur til.

Á fundinum fyrr í vikunni tilkynnti talsmaður Ryanir að félagið bjóði 3000 farmiða til Dyflinnar á 30 sent (ca. 61 króna íslensk) en þangað er fyrsta flugið frá Kastrup áætlað 18. mars.

Á þessari stundu er engin leið að segja til um hvernig þessi mál æxlast en hins vegar óhætt að slá því föstu að hart verður barist um kúnnana á Kastrup. Slíkt þýðir lægra farmiða­verð og það hljómar vel í eyrum almennings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár