Arion banki uppfærir starfskjarastefnu svo hægt sé að „laða að og halda í hæfa leiðtoga“

Arion banki ætlar að kaupa eigin bréf fyrir allt að 28 milljarða króna næsta rúma árið. Gangi þau áform eftir mun bankinn skila næstum 87 milljörðum króna til hluthafa frá byrjun síðasta árs. Starfsloka­samningar mega ekki verðlauna mistök í starfi.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Á aðalfundi Arion banka, sem fram fer 16. mars næst­komandi, mun verða lögð fram tillaga stjórnar um að bankinn fái heimild til að kaupa allt að tíu prósent hlut í sjálfum sér, eða alls um 150 milljón hluti. Markaðs­virði þess hlutar í dag eru um 28,3 milljarðar króna.

Heimildina á að nýta til að setja upp formlega endurkaupa­áætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum. Framkvæmd endur­kaupa á grund­velli heimildar þessarar er háð því skilyrði að fyrir fram samþykki Fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands.

Þetta kemur fram í tillögum sem lagðar verða fyrir aðalfund Arion banka og hafa verið birtar í Kauphöll Íslands.

Til viðbótar við möguleg endurkaup stendur til að greiða 79 pró­sent af hagn­aði síðasta árs út sem arð, alls 22,5 millj­arða króna. Gangi öll þessi áform eftir mun Arion banki vera búinn að greiða hluthöfum sínum 86,6 milljörðum króna út úr rekstrinum með arðgreiðslum og endur­kaupum frá byrjun árs 2021.

Laða að og halda í „hæfa leiðtoga“

Í tillögunum eru einnig lagðar til ýmsar breytingar á starfs­kjörum stjórn­enda í Arion banka. Í uppfærðri starfs­kjarastefnu, sem verður lögð fyrir aðalfund til samþykktar, segir meðal annars að almennt skuli „starfs­kjör banka­stjóra, aðstoðar­bankastjóra, framkvæmda­stjóra og reglu­varðar vera til þess fallin að laða að og halda í hæfa leiðtoga. Starfs­kjaranefnd stjórnar skal, að fengnum tillögum banka­stjóra, samþykkja viðeigandi launaramma, þar sem tekið er tillit til starfs­kjarastefnu þessarar, saman­burðar við fyrirtæki sem eru sambærileg Arion banka að því er varðar starfsemi, stærð, eða orðspor, og sem samræmast fyrirtækja­menningu bankans, stefnu, gildum, áherslu á sjálfbærni og langtíma­hagsmunum hluthafa bankans og annarra hagsmuna­aðila.“

Í tillögunum segir að það sé mat stjórnar bankans að þær breytingar sem lagðar séu til varðandi starfs­kjör banka­stjóra, aðstoðar­bankastjóra, framkvæmda­stjóra og reglu­varðar, styrki frekar grundvöll fyrir bankann til þess „að halda hæfileika­ríkum stjórn­endum, einkum með því að gera það skýrt að starfs­kjör æðstu stjórn­enda skuli vera til þess fallin að laða að hæfileika­ríka einstaklinga.“

Bene­dikt Gísla­son­, banka­stjóri Arion banka, var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð á síð­asta ári. Hann fékk auk þess kaupauka upp á 17,5 millj­ónir króna, sem greiddur var út í formi hluta­bréfa, og kauprétti á bréfum í samræmi við kaup­réttakerfi bankans ofan á það.

Mistök eða vanræksla ekki verðlaunuð

Sá hluti sem snýr að starfsloka­samningum helstu stjórn­enda er einnig uppfærður í tillögunum.

Þar segir að í undan­tekningar­tilvikum sé hægt að gera „starfsloka­samning við banka­stjóra, aðstoðar­bankastjóra og framkvæmda­stjóra. Skilmálar slíkra samninga skulu vera í formi beinna launa­greiðslna og ekki vara lengur en í 12 mánuði eftir starfslok. Starfsloka­greiðslur skulu að endur­spegla árangur í starfi og mega ekki verðlauna mistök eða vanrækslu.“

Þá er sá hluti starfs­kjarastefnu bankans sem fjallar um kaupauka­kerfi einnig uppfærður og nú gert ráð fyrir að hann hafi heimild til að hætta við kaupauka­greiðslur, sem ekki hafa verið inntar af hendi, eða endur­heimta þegar greiddar kaupauka­greiðslur, að hluta til eða að öllu leyti, „til dæmis vegna tilvika þar sem viðkomandi starfs­maður hefur tekið þátt í eða borið ábyrgð á athöfnum sem hafa valdið verulegu tapi fyrir bankann eða falið í sér meiri háttar brotum á reglum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár